fjárlög 2015.
Herra forseti. Já, það hefði vissulega mátt hafa meira samráð um ýmis mál. Mig langar líka að velta því upp að í fjárlagafrumvarpinu kemur fram að gert sé ráð fyrir 3,5% hækkun á bótum almannatrygginga en nú er lagt til í breytingartillögunum að það verði einungis 3% og ég veit að það er tengt verðlagsvísitölu. Var ekkert rætt að þessi hópur sem hefur auðvitað mjög litlar ráðstöfunartekjur, frá kannski 170–190 þús. kr. á mánuði, fengi að njóta lækkunar verðbólgu í þessu samhengi miðað við loforð ríkisstjórnarinnar um að bæta í þennan málaflokk? Vitað er að matur, húshitun og lyfjakostnaður, allt er þetta að hækka og aukinn kostnaður er í þessum málaflokkum. Lyf og hjálpartæki eru í efra skattþrepi. Það er mikið sem fólk með mjög lágar ráðstöfunartekjur þarf að leggja út.