fjárlög 2015.
Herra forseti. Ég ætla ekki að leiðast út í mjög langar umræður um finnskan landbúnað og stöðu finnskra bænda eftir að þeir urðu aðilar að stóra kaupfélaginu í Brussel. Það er mikil sorgarsaga sem ekki er fallegt — (ÖS: Ekki segja þeir.) Hv. þingmaður, ég hef verið á vettvangi í Finnlandi. Ég hef heimsótt marga finnska bændur. Vandi þeirra er gríðarlegur. Hrun finnsks landbúnaðar er stórkostlegt og þannig er í mörgum öðrum löndum. En það var kannski ekki efni spurningar hv. þingmanns áðan heldur þessi: Hvers vegna bara hluta andvirðis af sölu eignanna? Ég vil einfaldlega ekki loka augunum fyrir því að við eigum með einhverjum hætti að skila fjármunum aftur til ríkissjóðs af þeim hallarekstri sem hefur verið í þeirri stofnun sem við ræðum um. Um hitt er ég honum algjörlega sammála, það mætti verja þeim fjármunum líka til eflingar rannsóknum sem og starfsmenntanáminu sem þar er í búfræði og garðyrkju. Við þyrftum virkilega að komast í að bæði fríska upp kennsluhætti og nútímavæða á alla lund. Það er einmitt fólkið sem vinnur verkin, hirðir búféð og passar landið sem við þurfum að mennta sem best hverju sinni.
Sannarlega er ekki allur vandi stofnunarinnar leystur, en við höfum náð góðum áfanga. Stofnunin mun halda áfram að vaxa og dafna, m.a. á þeim sviðum sem hv. þingmaður nefndi, í loftslags- og votlendisrannsóknum, en hann hefur líka gert sig gildandi í öðrum umhverfismálum, m.a. umhverfisskipulagi. Hann hefur raunverulega framleitt starfsfólk sem sveitarfélög víðast hvar á landsbyggðinni, úti um allt land þess vegna, treysta á í skipulagsmálum. Við vitum að fólk sem útskrifast úr háskólum á landsbyggðinni og þar hefur menntast er fólkið sem sest að í byggðunum, fólkið sem ber uppi byggðirnar og eyðir ævidögum sínum þar og kröftum.