144. löggjafarþing — 40. fundur,  4. des. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[00:29]
Horfa

Haraldur Benediktsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil einungis um það segja að ég ætla ekki að kenna stofnanabreytingunni um að málaflokknum sauðfjárveikivarnir sé komið með þessum hætti, heldur forgangsröðun innan þeirrar stofnunar og virðingunni fyrir mikilvægi þess málaflokks. Forstöðumenn stofnana segja einfaldlega að þeir hafi ekki peninga í þetta og skera þar af leiðandi af. Það rekur mjög hratt að því sem hv. þingmaður spurði um, að það fari að valda skaða. Það hefur þegar valdið bændum tjóni þar sem varnarlínur eru ónýtar og fé gengur yfir línur og er línubrjótar. Bændur eru að missa gripi í sláturhús sem þeir hefðu kannski ætlað að búa með áfram. Svarið við spurningunni er: Já, þetta er farið að ógna stöðu þess merkilega verkefnis að berjast við búfjársjúkdóma með þessum hætti sem og afkomu bænda.