144. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[14:56]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Það er raunar afstaða mín að það liggi fyrir að það sé enginn lagagrunnur fyrir þessari tillögu meiri hluta fjárlaganefndar og hún geti ekki skilyrt fjárframlag sitt með því móti sem verið er að gera. Og ég vil minna á að stjórn Ríkisútvarpsins er að 6/9 skipuð fulltrúum ríkisstjórnarflokkanna. Þá var ekki svo lítið sem lá hér á að tryggja þann drjúga meiri hluta.

Svo er tekið fram fyrir hendurnar á þeim meiri hluta með þessari tillögu, eða tillagan hljóðar þannig að stjórnin er í raun og veru tekin úr sambandi. Mér finnst mjög alvarlegt að við þurfum hér ítrekað að óska eftir því eða árétta það að þingið fari einfaldlega að lögum, að þingið sjálft fari að lögum. Ég verð að segja að meiri hluti fjárlaganefndar er aðeins að missa sjónar á takmörkunum umboðs síns ef hann heldur að hann geti gert slíkt. Ég er sammála hv. þingmanni um það að ef meiri hluti fjárlaganefndar ætlar að gera þetta, ef ríkisstjórnarflokkarnir ætla að gera þetta þá verða þeir að gera svo vel að koma fram með nýtt frumvarp um nýtt ríkisútvarp, nýtt skert og niðurlægt ríkisútvarp.