144. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[17:16]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Nákvæmlega. Það er svo afgerandi í kosningaloforðum beggja stjórnarflokkanna að heilbrigðisstarfsfólkið sé lykilatriðið og það er leiðarljósið þegar kemur að úthlutun skattfjár. Sjálfstæðisflokkurinn er flokkur sem vill lækka skatta og fara vel með, a.m.k. láta líta út fyrir að hann fari vel með skattfé. Nú segja landsmenn að það eigi að skila því skattfé sem Sjálfstæðisflokkurinn er að taka og forgangsraða því — í hvað? Jú, m.a. í öruggt heilbrigðiskerfi þar sem leiðarljósið er starfsfólkið og kjör þess.

Ég hef verið að spyrja þingmenn hvort þeir séu ekki hlynntir því við þessar kringumstæður, þar sem við gætum farið að missa starfsfólkið okkar og lent í þannig spíral að vaktaálagið lendi á því starfsfólki sem verður eftir sem er þá líklegra til að fara líka og þannig koll af kolli, að við forgangsröðum skattfé almennings í að hækka laun lækna. Er þingmaðurinn ekki sammála því að við eigum að veita læknum sérmeðferð? Það er verið að segja að fái læknar launahækkun fari allar aðrar stéttir af stað. En eigum við ekki í þessu árferði að veita læknum sérmeðferð?