fjárlög 2015.
Virðulegi forseti. Ég lít svo á að hv. þingmaður hafi í raun svarað spurningu minni svo að hin almennu lög hljóti að standa fjárlögum ofar því að þeim þurfi að breyta ef fjárlögin dugi ekki til til þess að stofnun geti sinnt lögbundnum skyldum sínum.
Hvað varðar háskólana þá held ég að það séu nokkrar hliðar á því máli. Það hefur verið trú mín að hægt sé að ná talsverðum faglegum ávinningi með sameiningu stofnana, bæði háskólastofnana og rannsóknastofnana, þannig að fólk vinni betur saman. Þær ábendingar sem ítrekað hafa komið fram frá sérfræðingum eru að kerfið okkar sé ansi brotakennt. Hins vegar leyfi ég mér að efast um að af því verði mjög mikil hagræðing því að þegar við skoðum hið alþjóðlega svið erum við með mjög lág framlög til háskólastigsins. Við erum langt á eftir öðrum Norðurlandaþjóðum og undir OECD-meðaltali.
Mig langar að vísa því til hv. þingmanns sem nefndi að við þyrftum að skoða þessa hluti: Þurfum við ekki að gera það fyrst og fremst með það að markmiði að efla hér fagleg gæði, bæði í rannsóknum og háskólakennslu?