144. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[19:17]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (P) (andsvar):

Forseti. Ef maður skoðar þessi fjárlög og síðan vilja þjóðarinnar er töluverð skekkja hvernig okkar sameiginlegu fjármunum er úthlutað. Finnst hv. þm. Katrínu Jakobsdóttur réttlætanlegt hversu mikið er lagt í þjóðkirkjuna miðað við það hversu mikill bráðavandi er í heilbrigðiskerfinu og menntakerfinu? Í skoðanakönnun sem var gerð nýverið kemur fram varðandi forgangsröðun langminnstur stuðningur við útgjöld til kirkjumála. Hvað finnst þingmanninum um það hvernig við ráðstöfum þessum skattpeningum út frá því hvernig almenningur vill í raun og veru að við ráðstöfum þeim (Forseti hringir.) fjármunum sem við fáum frá honum?