144. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[19:28]
Horfa

Katrín Jakobsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég hlustaði á ræðu hv. þm. Guðlaugs Þórs Þórðarsonar hér í gær. Mér fannst hann vera að bera saman stöðu Ríkisútvarpsins að það sem var áður en því var breytt í opinbert hlutafélag þar sem það var enn opinber stofnun. Hann var með tölur frá árabilinu 2005–2015 og bar þar saman gerólíka gjaldheimtu, þ.e. annars vegar afnotagjöldin sem voru innheimt fram til ársins 2008 og hins vegar útvarpsgjaldið. Þessi samanburður finnst mér ekki standast skoðun þegar hann er skoðaður grannt.

Hvað varðar stjórnarskrárákvæðið geri ég engan ágreining um það að vitaskuld þarf framlagið til RÚV að birtast í fjárlögum og vera samþykkt á Alþingi. Þegar við samþykktum lögin með greiddum atkvæðum allra nema hv. þingmanna Sjálfstæðisflokksins taldi ég hins vegar að við værum að reyna að ná sátt um að það sem almenningur greiðir sérstaklega í útvarpsgjald til reksturs almannaútvarps rynni þá til almannaútvarpsins þó að það sé svo staðfest í ákvörðun í fjárlögum hverju sinni. (Forseti hringir.) Ég tel ekkert í þessu fyrirkomulagi stangast á við stjórnarskrá lýðveldisins.