fjárlög 2015.
Virðulegur forseti. Það sem vefst fyrir mér í þessum efnum er að ég skil ekki hvað hefur tekið svo langan tíma í því að koma á einhvers konar tekjuöflun varðandi ferðamannastaði. Það eru komin næstum því tvö ár frá því að núverandi ríkisstjórn tók við. Það er ekki eins og umræðan um náttúrupassann hafi byrjað á þessu kjörtímabili. Það var verið að tala um hann í lok síðasta kjörtímabils, þó nokkuð lengi, og ég skil ekki hvernig hægt var að komast að jafn vondri niðurstöðu og raun ber vitni. Það er eins og sum mál versni eftir því sem menn hugsa meira um þau. Þetta er orðið þannig að maður sér ekki fyrir sér að það muni nást nokkur sátt um málið. Ég held að alla vega í bili, til þess að leysa málið til skamms tíma, sé skynsamlegt að ráðast í hækkun á gistináttagjaldi til þess að geta innheimt einhverja peninga og brugðist við. Það er ekki bara það að þetta muni bitna á ferðamannastraumnum, sem ég held að sé enn um sinn jákvæður, þ.e. að það sé ekki skemmtileg upplifun fyrir fólk að koma á staði sem eru troðnir niður og þar sem er of mikið af fólki og engin salernisaðstaða og klósettpappír fjúkandi út um allt, heldur geti þetta líka leitt til þess að þeir staðir sem eru okkur hvað dýrmætastir og við stærum okkur af þegar við fáum gesti hingað til landsins verði fyrir varanlegum skaða.
Það er því er til nokkuð mikils að vinna í þessum efnum. Það er ekki bara þetta, það er líka það að fjölga ferðamannastöðum. Ég hef til dæmis sjálfur verið með eitt lítið mál hérna í þinginu sem er göngubrú yfir Markarfljót, sem gæti dreift ferðamannastraumi og göngumönnum um Þórsmörk og búið til fleiri gönguleiðir. Við þurfum líka að huga að því, af því að fólksfjöldinn er orðinn slíkur að það er full þörf á því.
Þess vegna er auðvitað mjög gagnrýnivert að menn skuli ekki vera búnir að lenda þessu máli. Það er eitthvað sem við reyndum að aðstoða núverandi ríkisstjórn við fyrir ári en þau voru því miður ekki tilbúin til þess að þiggja þá aðstoð.