fjárlög 2015.
Virðulegi forseti. Það hefur verið athyglisvert að fylgjast með því þegar aðilar úr ferðaþjónustu hafa komið og rætt þessi mál í efnahags- og viðskiptanefnd. Það er greinilegt að þeir hafa af því þungar áhyggjur hversu hægt gengur að byggja upp fjármagn. Ríkisstjórnin fór í mikla skógarferð í þessu máli, byrjaði á að fella niður hækkun fyrri ríkisstjórnar á virðisaukaskattshlutfalli á ferðaþjónustuna, úr 7% í 14%, sem þó hafði verið gefinn ríkur fyrirvari á. Nú ætlar hún að hækka úr 7% í 11% með nokkurra daga fyrirvara, þannig að ósamkvæmnin í málflutningi er fullkomin. En þá misstu menn af tækifæri.
Mér þykir leitt af því að það er enginn stjórnarliði hér í salnum núna — jú, ég sé hana, hv. þm. Vigdís Hauksdóttir er hér í hliðarsal. Ég ætlaði einmitt að hrósa henni því að hún var fyrst stjórnarliða til að sýna það hugrekki að viðurkenna að sú ákvörðun hefði verið röng. Hún sagði það í umræðu um gjaldtöku af ferðaþjónustunni í vor að það hefðu verið mistök. Ég virði hana fyrir það. Fyrir vikið tóku menn ekki gjöld af greininni á þessum ótrúlegu uppgangstímum þegar mjög mikilvægt hefði verið að taka af henni gjöld. Þetta er eins og með árnar, ef vatnið sem rann til sjávar í gær eða í fyrradag eða á síðasta ári er ekki virkjað.
Og það er ákveðið vandamál í þessu efni. Sjóðsöfnun mun ganga hægt í nýjan sjóð sama hvaða leið verður valin. Þess vegna er þetta svo bagalegt, verkleysi ríkisstjórnarinnar í þessu efni, ég tala nú ekki um að ráðherrann skuli hafa tekið eitt og hálft ár í að gera vonda hugmynd algjörlega óframkvæmanlega. Það virðist vera eini árangurinn af 18 mánaða starfi að atvinnugreinin er orðin algjörlega á móti málinu og hugmyndin, sem var vond í byrjun, er orðin algjörlega skelfileg.