fjárlög 2015.
Virðulegi forseti. Ég biðst forláts að hafa ekki svarað öllum spurningum sem hv. þingmaður beindi til mín í fyrra andsvari, ég ætla að reyna að ná yfir þetta mest núna.
Í fyrsta lagi er gott að hún minnti mig á að það stendur í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar að fallið verði frá hækkun á virðisaukaskatti. Það verður þá gaman að sjá upplitið á framsóknarmönnum næsta haust þegar hæstv. fjármálaráðherra kemur með boðaða seinni hækkun á virðisaukaskattinum úr 11% í 14%. Þá verða menn búnir að ná aftur hækkuninni á ferðaþjónustu upp í 14% og geta reynt að útskýra það fyrir ferðaþjónustunni allri hvernig þeir hafi efnt það fyrirheit að falla frá hækkun á virðisaukaskatti á ferðaþjónustu, með því að lækka hana úr 14% niður í 7%, færa hana upp í 11% og svo aftur upp í 14%. Það er ágætisaðferð til að lækka virðisaukaskatt úr 14%, að taka tvö ár í að setja hann aftur upp í 14%.
Að öllu gamni slepptu, virðulegi forseti, þá er framgangan varðandi samningana — ég verð að einskorða mig við það vegna þess hversu tíminn er orðinn naumur — ekki tæk. Það er ekki þannig að fjárlaganefnd geti búið til sérstök skilyrði um veitingu fjárframlaga til Ríkisútvarpsins umfram það sem segir í lögum. Lögin um Ríkisútvarpið og skyldur stjórnarinnar til þess að fara að þeim, og þar með talið að veita þá almannaþjónustu sem þar er tilgreind, ganga framar öllum skilmálum sem fjárlaganefnd kann að samþykkja.
Ég verð nú bara að segja alveg eins og er að mér finnst þetta hraksmánarleg framkoma stjórnarflokkanna við það góða fólk sem hefur fallist á að takast það erfiða verkefni á hendur að setjast í stjórn Ríkisútvarpsins fyrir þeirra hönd. Þetta er bara að biðja menn um að setjast við erfið verkefni með báðar hendur bundnar fyrir aftan bak. Ég bara skil ekki þessa framkomu gagnvart þessu góða fólki sem síðan situr þarna og er greinilega einbeitt í því að vinna í þágu stofnunarinnar eins og mögulegt er, setur hagsmuni hennar í öndvegi.
Mig langar bara að fá að ljúka máli mínu hérna með því að segja: (Forseti hringir.) Mér finnst það sérstaklega hrósvert hvernig stjórn Ríkisútvarpsins hefur komið fram einhuga stofnuninni til varnar í þessu máli.