fjárlög 2015.
Virðulegi forseti. Þá er það 2. umr. um fjárlög. Ég ætla að fara hér í gegnum nokkur atriði fjárlaganna sem ég tel mikilvægt að vekja athygli á og leita svara við. Ég vona að ég fái svör frá stjórnarmeðlimum en þeir eru nú ekki margir í salnum ef nokkur. Mig langar auðvitað að eiga samtal við þá sem leggja fram fjárlagafrumvarpið því að ég sé á því nokkra meinbugi og vil athuga hvort þessi málstofa geti ekki gert nokkurt gagn. Ég vona að við séum ekki hér til einskis.
Mig langar að byrja á að lesa aðeins úr nefndaráliti meiri hlutans. Á bls. 1 og 2 segir eftirfarandi, með leyfi forseta:
„Mikilvægt er að líta á fjárlögin í heild og forgangsraða í þágu grunnþjónustunnar. Nokkuð hefur áunnist í þessum efnum þar sem ríkissjóður er nú rekinn hallalaus sem er grundvallaratriði. Þá er nokkuð í land með að hefja niðurgreiðslu skulda en vaxtakostnaður er þriðji útgjaldamesti málaflokkurinn á eftir heilbrigðismálum og almannatryggingum. Hann nemur hærri fjárhæð en öll framlög ríkissjóðs til reksturs Landspítalans og Sjúkratrygginga Íslands. Háar skuldir ríkissjóðs eru ávísun á að börn okkar og barnabörn muni að öllu óbreyttu ekki njóta sömu lífsgæða og við.“
Ég vek athygli á þessu í nefndaráliti stjórnarliða um frumvarp til fjárlaga. Ég tek undir hvert orð sem ég las upp. Ég er fullkomlega sammála þessu öllu. Ég verð að segja að ég get samt engan veginn séð hvernig þau fjárlög sem lögð eru fram og þessi orð eru rituð um eiga við þessa sýn: „Háar skuldir ríkissjóðs eru ávísun á að börn okkar og barnabörn muni að öllu óbreyttu ekki njóta sömu lífsgæða og við.“
Ríkisstjórnin hendir um 80 milljörðum í skuldaniðurfellingu fyrir suma. Þar er ekkert verið að hafa áhyggjur af háum skuldum ríkissjóðs eða því að börn okkar og barnabörn muni að öllu óbreyttu ekki njóta sömu lífsgæða og við. Stjórnvöld vísa í forsendubrest í þessu samhengi og svo virðist sem forsendubresturinn í huga stjórnvalda hafi einungis verið hjá fólki er átti verðtryggð húsnæðislán. Þannig var forsendubresturinn af einhverjum ástæðum til dæmis ekki hjá þeim sem voru með verðtryggð námslán, ekki hjá þeim er borguðu óbeint verðtryggð lán þegar þeir tóku á sig hækkanir í kjölfar hrunsins í gegnum leigusamninga og einhverra hluta vegna var ekki forsendubrestur hjá því fólki sem tók á sig ýmiss konar verðhækkanir vegna hrunsins. Þetta fólk fellur ekki undir skilgreiningu stjórnvalda sem skuldaniðurfellingin miðar við. Þessir hópar eru ekki gjaldgengir í þessa leiðréttingu. Það er mér algjörlega óskiljanlegt. Það er ekki mikil sanngirni í því að mínu mati.
Ég er á því að það sé illa hægt að finna sanngjarna leið til þess að leiðrétta hrunið, en fyrst á að reyna að gera það — við í Bjartri framtíð höfum alveg verið opin fyrir því — er ósanngjarnt að sumir fái en aðrir ekki. Það er ósanngjarnt því að þessi skuldaleiðrétting er alveg óháð því hver þurfi raunverulega eitthvað. Við í mínum flokki viljum halda fast um budduna. Þess vegna höfum við viljað horfa á málið þannig að ef það þarf að hjálpa einhverjum eða færa niður skuldir einhverra þá skuli gera það á mjög grandvaran hátt og passa upp á að fé úr ríkissjóði fari þangað sem raunveruleg þörf er á. Við erum að ræða um fé allra skattgreiðenda.
Það sem þarf að gera er sem sagt að hjálpa þeim sem verst eru settir. Það erum við ekki að gera með þessu fjárlagafrumvarpi, því miður. Stjórnarmeirihlutinn lætur öryrkja sitja eftir. Stjórnarmeirihlutinn tekur meira að segja til baka hækkun upp á 0,5 prósentustig til öryrkja; prósentutalan var 3,5% en er núna lækkuð niður í 3%. Í þessu samhengi, herra forseti, vil ég benda á það sem við vitum og höfum oft verið minnt á að hæstu bætur almannatrygginga eru um 162 þúsund eftir skatt. Við höfum svo oft verið minnt á þetta að það er næstum því eins og við séum orðin ónæm fyrir því. Hvernig á fólk að lifa af þessari upphæð? Hvernig getum við talað um fjárlög ef við ætlum ekki að svara þeirri spurningu?
Svo eru hækkaðar álögur á sjúklinga, greiðsluþátttaka lyfja eykst. Tími hámarksatvinnuleysisbóta er lækkaður um ár. Fyrir mína parta væri það kannski allt í lagi sem kerfisbreytingar ef eitthvað kæmi í staðinn, ef þetta væri trappað niður á skynsaman hátt, ef fótunum væri ekki kippt undan fólki sisona. Til að bæta gráu ofan á svart eru vinnumarkaðsúrræðin líka skorin niður. Það er engin heildarhugsun í þessu. Það er ekkert sem vinnur virkilega með fólki og hjálpar því til sjálfshjálpar.
Ég hefði viljað ræða skuldaniðurfellinguna alræmdu mun meira en gert hefur verið hér í vetur. Ég tel að það hefði verið þörf á að ræða hana mun meira. Það þarf að ræða hvernig ungt fólk og næstu kynslóðir framtíðar taka á sig þær byrðar sem við sköpum þeim. Ég verð að viðurkenna, herra forseti, að það fýkur svolítið í mig yfir því að við sem foreldrar og viti borið, skynsamt fólk leyfum okkur að leggja slíkar byrðar á börnin okkar, á næstu kynslóðir. Mér finnst það algjörlega óforskammað. Við gerum það bara svo að við getum haft það aðeins betra. Mér finnst ekki mikill sómi að því. Mér hefði fundist meiri sómi að því að taka á vanda samtímans og reyna að búa komandi kynslóðum betri framtíð.
Í vikunni fór velferðarnefnd Alþingis í heimsókn til umboðsmanns skuldara. Ég ætla aðeins að koma inn á það hérna út af málefnum ungs fólks. Við fórum yfir sögu stofnunarinnar sem var eins og þingheimur veit sett upp í snarhasti eftir hrun og fékk það verkefni að sjá um greiðsluaðlögun og samninga fyrir fólk í miklum skuldavanda, sem var mikill fjöldi. Þetta fólk átti í engin önnur hús að venda en þarna var með myndarbrag komið á fót stofnun sem mikil þörf var á. Enn er umboðsmaður skuldara að vinna eða leitast við að leysa úr vanda fólks í skuldavanda. Það er athyglisvert og ég vil koma því á framfæri hér að vandinn virðist vera að breytast. Skuldirnar núna eru ekki aðallega vegna húsnæðislána heldur eru þær neysluskuldir, neysluskuldir ungs fólks á leigumarkaði. Það nær ekki endum saman. Þetta er flest venjulegt útivinnandi fólk. Það getur ekki fengið lán hjá bankanum sínum út af því að við settum svo ágæt lög um neytendalán sem gera að verkum að fólk fær ekki greiðslumat fyrir hærri yfirdráttarheimildum. Ég er ekki að segja að það ætti að fá það endilega en neyðin hrekur þetta fólk til smálánafyrirtækja og þar tekur það lán á okurvöxtum og festist í vítahring. Þetta unga fólk fær ekki neina skuldaleiðréttingu, en það fær að borga fyrir hina með sköttunum sínum.
Í framhaldi af skuldaniðurfellingunni finnst mér til lítils að tala um aga í ríkisfjármálum þegar það þykir í lagi að henda 80 milljörðum í suma og jafnvel einhverja sem þurfa ekki á því að halda í stað þess að borga til dæmis niður skuldir. Krafan um aðhald og aga í ríkisfjármálum, sem ríkisstjórnin og stjórnarþingmenn hafa klifað á, sem er gott út af fyrir sig, má sín lítils ef ekki er farið fram með góðu fordæmi.
Í þessu sambandi þykir mér rétt að benda á, eins og 3. minni hluti fjárlaganefndar gerir, hve mikið kostnaður ríkisstjórnarinnar hefur aukist á undanförnum tveimur árum. Ég ætla að fara aðeins í gegnum það. Í nefndaráliti 3. minni hluta segir, með leyfi forseta:
„Kostnaður vegna þessa fjárlagaliðar var 253 millj. kr. á árinu 2012. Árið 2013 voru kosningar sem kalla yfirleitt á aukin útgjöld á þessum lið og fór hann í 337,6 millj. kr. Í fjárlögum fyrir árið 2014 er áætlað að hann nemi 311 millj. kr. og í frumvarpi fyrir árið 2015 er gert ráð fyrir tæpum 340 millj. kr. Hækkun á þessum fjárlagalið nemur 34% frá árinu 2012 til 2015.“
Ríkisstjórnin leyfir sér að hækka sinn fjárlagalið um 34% út af því að hana vantar fleiri aðstoðarmenn. Þar er engin aðhaldskrafa heldur 34% hækkun.
Herra forseti. Ég ætla að snúa mér að öðru máli sem liggur þungt á mér í sambandi við þetta fjárlagafrumvarp. Það eru heilbrigðismálin. Eins og við vitum kom forstjóri Landspítalans, Páll Matthíasson, fram í haust og tjáði allri þjóðinni að það vantaði um 1.800 milljónir upp á í fjárlög til þess að reka mætti Landspítalann á sama þjónustustigi og verið hefur. Hingað til höfum við ekkert verið að gorta okkur af miklum lúxus þar á bæ. Forstjórinn var nota bene að tala um sömu þjónustu, að það þyrfti um 1.800 milljónir fyrir sömu þjónustu og verið hefur.
Hvernig hefur þjónustan verið? Við skulum átta okkur aðeins á því. Geðdeildum hefur til dæmis verið lokað á sumrin — bráðageðdeildum á Landspítalanum hefur einfaldlega verið lokað út af fjárskorti. Þjónustan er yfir höfuð, held ég að megi segja, gamaldags hjá okkur. Hún byggir á gamaldags tækni því að við eigum bara gömul tæki. Því eru ekki viðhöfð þau nútímavinnubrögð eða sú nútímalæknisfræði sem læknar vildu svo gjarnan koma heim eftir sérfræðinám og sinna. Nei, það eru verri og eldri aðferðir sem stjórnvöld bjóða upp á því að aðstaða og tæki bjóða ekki upp á annað.
Svo ég haldi áfram með umræðu um aðhald í ríkisfjármálum þá langar mig að velta því upp hvað kostar okkur að gera hlutina illa. Hvað kostar það okkur til dæmis að veita fólki ekki sálfræðimeðferð? Við gerum það mjög takmarkað. Þetta er meira að segja tiltölulega ódýr þjónusta. Við beinum fólki í samtalsmeðferðir til sálfræðinga og segjum: Heyrðu, þú skalt bara borga 13 þúsund fyrir tímann, vinur. Ég get ekkert staðið í því að borga það fyrir þig. — Þetta getur verið þjónusta sem skiptir öllu máli fyrir viðkomandi. Hvað mætti draga úr lyfjakostnaði á móti við að niðurgreiða sálfræðiþjónustu? Hefur það verið sett eitthvað upp? Hefur verið gerð einhver greining á því? Hún þarf ekkert að vera flókin. Við vitum að hugræn atferlismeðferð samhliða geðlæknismeðferð og jafnvel lyfjameðferð virka mun betur en bara lyfjameðferðin ein og sér. Þetta segja rannsóknir okkur.
Hvað getum við grætt á því í peningum, svo að við reynum að vera praktísk, á því að gera hlutina almennilega og þá líka almennilega fyrir fólkið í landinu? Hvað kostar það til dæmis að styðja ekki öryrkja til sjálfshjálpar? Hvað kostar það okkur að veita öryrkjum engin bjargráð, að styrkja þá ekki í að efla eigin bjargráð? Hvað kostar að hafa fólk óvirkt og ekki á vinnumarkaði? Ég meina, fólk vill ekki vera heima hjá sér óvinnandi. Margir mundu þiggja að vinna hlutfallslega, ef þeir mögulega gætu, miðað við starfsgetu og fá á móti einhverjar örorkubætur. Við erum léleg að finna út úr því og það tekur okkur allt of langan tíma. Fyrir utan náttúrlega hvað fólkið sjálft mundi græða.
Svo er ýmislegt annað í heilbrigðisþjónustu sem ég spyr mig aftur um: Hvað kostar að gera hlutina illa? Hvað kostar að gera ekki neitt? Hvað kostar að hafa til dæmis ekki PET-skanna á Íslandi? Hvað kostar að senda fólk út í heim í svoleiðis myndgreiningar? Hvað kostar, eins og læknar hafa tjáð mér að sé stundum gert, að gera aðgerðir á fólki sem ekki hefur gefist tími til að fara til Danmerkur eða eitthvert annað í PET-skanna til að fá almennilega greiningu? Þá eru jafnvel gerðar óþarfaaðgerðir hér á landi sem er sóun á tíma og reynir á starfsþrek sjúklingsins og auðvitað allt batteríið á spítalanum. Þetta er út af því að það er ekki til almennilegt tæki hér til þess að segja okkur fyrir fram hvort meðferðin sé vænleg eða ekki. Þetta kostar peninga.
Ég veit í rauninni út af því að ég hef grennslast fyrir um það að þessir hlutir eru ekki teknir með í stóra reikninginn. Ég gæti haldið lengi áfram og talið upp hina ýmsu skanna, tæki eða aðferðir og þá hagræðingu sem við missum af. Það er mjög auðvelt að finna þetta út á Landspítalanum, þar er heil hagdeild. Það eru svokallaðar DRG-kostnaðargreiningar og kostnaðartölur á bak við hverja einustu aðgerð eða meðferð. Maður hringir hreinlega þangað og fær fólk til að taka þetta saman fyrir sig. Hvað er ríkisstjórnin að gera í þessum málum? Það væri gaman að fá svör við því. Ég bíð spennt eftir andsvörum þessu lútandi frá stjórnarliðum.
Eins og ég sagði áðan þá vitum við að enn vantar fjármagn í Landspítalann þó svo að bætt hafi verið í á síðustu dögum. Mig minnir að það hafi verið milljarður sem hv. fjárlaganefnd jók í rekstur spítalans, sem er vel. Ég er hrædd um að hann étist upp í læknaverkfallinu því að það fara að myndast miklir biðlistar sem hlýtur að þurfa að vinna úr strax og hægt er. Það kostar peninga.
Það vakna auðvitað spurningar af því að við vitum að við erum ekki að veita nægilegt fé í Landspítalann, það liggur ljóst fyrir. Þá vaknar næsta spurning sem er: Hvaða þjónustu á að skera niður? Hvað á undan að láta? Ég fer á flug og velti fyrir mér hvort ríkisstjórnin ætli að láta fjölskyldur borga fyrir fæðingar á sjúkrahúsi eða hvort muni kosta að fá æðalegg. Hvað sér fólk fyrir sér? Mér vitandi eru ekki upp álíka hugmyndir um kostnaðarþátttöku, en við vitum aldrei hvað er handan við hornið. Ef ekki á að auka greiðsluþátttöku sjúklinga, sem ég vona svo sannarlega að gerist ekki, og reikningurinn gengur enn ekki upp þá verðum við að fá að vita hvaða þjónustu eigi að hætta að veita. Eru það hjartaþræðingar, fæðingarhjálp eða hvað? Hverju á að sleppa?
Þessu verða stjórnvöld að svara því að það er ekki hluti af starfsskyldum lækna eða hjúkrunarfræðinga eða annars heilbrigðisstarfsfólks að vera í því dómarasæti að segja: Við ætlum að lækna hérna hjarta en ekki heila og við ætlum að sleppa útlimum. — Skiljið þið? Við bjóðum ekki upp á það, það er ekki í boði. Ég hef mikið reynt að heyra í hæstv. heilbrigðisráðherra um hvað eigi undan að láta en hingað til hefur ekki verið mikið um svör.
Virðulegi forseti. Aðeins að sameiginlegum breytingartillögum stjórnarandstöðunnar. Mig langar að fara yfir nokkra þætti þar sem ég vil vekja athygli á. Stuðningur við atvinnulausa hjá Vinnumálastofnun, eins og ég nefndi áðan, er enginn í fjárlögum. Minni hlutinn leggur til breytingar þar á upp á 200 milljónir. Sóknaráætlun landshluta er verkefni sem ég skil eiginlega ekki að hafi verið skorið niður. Nú er þó bætt í en það þarf að gera betur. Það er sama hvert á land maður kemur, það er sama hvort maður talar við sjálfstæðismann eða framsóknarmann, það er sama í hvaða flokki fólk er, fólk um allt land talar vel um sóknaráætlun landshluta. Mér finnst taktískt vitlaust hjá stjórnarliðum að skera þessi góðu verkefni niður.
Svo vil ég leggja sérstaka áherslu á úrræði fyrir þolendur kynferðisofbeldis. Þar er skorið niður heilt yfir. Það eru 56 milljónir allt í allt. Á fyrra kjörtímabili hófst vinna þvert á ráðuneyti í samstarfi við fagaðila og með aðkomu lögreglunnar þar sem farið var yfir hvernig mætti bæta úrræði fyrir þolendur kynferðisofbeldis, einkum börn. Gerð var áætlun sem kostaði í rauninni bara ekki neitt. Ég veit ekki hvernig maður á að meta það í peningum að koma í veg fyrir kynferðisofbeldi gagnvart börnum. En að 56 milljónir sé of mikið í það brýna verkefni finnst mér til skammar fyrir þessa ríkisstjórn, algjörlega til skammar.
Ég ætlaði að lokum að ræða fjarskiptamál. Það er eins með það og sóknaráætlun landshluta, þ.e. allir eru sammála um að bæta þurfi úr svo að það haldist byggð alls staðar á landinu. Það vekur mikla furðu að stjórnarliðar, þingmenn allra kjördæma, ég tala nú ekki um á vestanverðu Norðurlandi og á Suðurlandi, skuli ekki leggja meiri áherslu á þetta. Það er athyglisvert og örugglega áhugavert fyrir kjósendur þeirra. En ég ætla að láta staðar numið núna, herra forseti. Ég vonast til að fá einhverjar skýringar frá þeim stjórnarliðum sem eiga að taka þátt í umræðunni hér.