144. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[23:18]
Horfa

Árni Páll Árnason (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þingmaður flutti ágæta ræðu og auglýsti eftir því að fá svör frá stjórnarþingmönnum við ýmsum áleitnum spurningum sem hún setti fram í ræðunni, en því miður taka þeir ekki þátt í umræðunni með þeim hætti hér í kvöld.

Ég vildi hins vegar spyrja hana, vegna þess að hún gerði að umtalsefni þá stöðu sem upp er komin í heilbrigðisþjónustunni þegar ófullnægjandi fjárveitingar valda því að það er í reynd sett í hendur lækna að ákveða hvaða aðgerðir er ekki hægt að gera og að taka grundvallarákvarðanir um framboð á þjónustu. Þetta virðist vera orðinn plagsiður hjá ríkisstjórninni því að það sama er hún að gera með ónógum fjárveitingum, vísvitandi, til háskólans þar sem háskólinn þarf þá að meta hvað hann ætlar að bjóða upp á, hvar hann ætlar að takmarka eitthvað framboð, og eins með framlögum til Ríkisútvarpsins, þannig í staðinn fyrir að við eigum pólitíska umræðu á Alþingi um menntapólitíska stefnu, heilbrigðispólitíska stefnu þá eiga embættismenn eða stjórnendur stofnana að taka slíkar grundvallarákvarðanir út frá fjárveitingum hverju sinni.

Hv. þingmaður velti líka upp því hvort það væri þannig að aukin kostnaðarþátttaka væri lausnarorðið sem stjórnarmeirihlutinn væri að horfa til. Ég óttast það. Ég vil þess vegna minna á það að í þingmálaskrá kemur fram mál frá heilbrigðisráðherra um að greiðsluþátttökukerfi verði látið gilda yfir heilbrigðisþjónustu, hvort sem hún er veitt innan eða utan heilbrigðisstofnana. Það er ekki hægt að lesa öðruvísi en að það eigi þá að taka gjöld af fólki inni á heilbrigðisstofnunum.

Ég vil spyrja hv. þingmann hvernig hún líti slíka þróun, (Forseti hringir.) ef það verður farið að innheimta gjöld, legugjöld eða komugjöld fyrir innlagnir á spítala og að (Forseti hringir.) það verði þá nýjasti kaflinn í þessari sögu ríkisstjórnarinnar um aukna kostnaðarþátttöku.