144. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2014.

afturköllun þingmála.

[10:35]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseti vill minna á að samkvæmt 8. mgr. 57. gr. þingskapa falla niður ósvaraðar fyrirspurnir til ráðherra, sem hverfur úr embætti, en það eru fyrirspurnir til Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra og fyrirspurnir um dómsmál til hæstv. forsætisráðherra Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar.