fjárlög 2015.
Herra forseti. Það verður náttúrlega ríkissjóður sem mun borga, það er alveg ljóst. Ríkissjóður er sjóður sem við greiðum öll í en fáum mismikið út úr. Það er mjög góð regla að í hann sé greitt eftir getu og þegið eftir þörfum. Í þessu tilfelli skiljum við eftir leigjendur og hlutfall fátækra er hærra í hópi leigjenda. Þar er ungt fólk. Þar eru örorkulífeyrisþegar. Það fólk ber þennan kostnað. Ungt fólk er núna að reyna að koma sér inn á húsnæðismarkaðinn og hefði þurft að vera komið að heiman eða vera með eigin forráð fyrir löngu en hefur ekki getað það vegna hrunsins. Þetta er fólkið sem ber hitann og þungann af stóru millifærslunni til framtíðar.