fjárlög 2015.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Við erum um margt sammála um það sem kom fram í máli hennar, m.a. um það sem hún hóf mál sitt á varðandi framsetningu fjárlagafrumvarpsins sem er illskiljanlegt og texti flækjukenndur. Við gagnrýndum reyndar fjármálaráðuneytið fyrir það í fjárlaganefnd. Það er áhugavert þegar maður les svo stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar þar sem segir meðal annars að taka eigi upp bætt vinnubrögð við fjárlagagerðina, horfa til lengri tíma með því að bregðast við stöðu ríkissjóðs og tryggja skynsamlega nýtingu á fjármagni o.s.frv. Við erum ekki samstiga í hvernig beri að túlka skynsamlega nýtingu á fjármagni, ég held að það sé alveg ljóst.
Mig langar líka í ljósi þess að þingmaðurinn talaði mikið um heilbrigðismál að vitna áfram í stefnuplagg ríkisstjórnarinnar, með leyfi forseta:
„Íslenskt heilbrigðiskerfi verður að vera samkeppnisfært við nágrannalönd um tækjakost, aðbúnað sjúklinga og aðstæður starfsmanna. Ríkisstjórnin leggur áherslu á að landsmenn njóti aðgengis að heilbrigðisþjónustu óháð búsetu.“
Eins og kom fram í máli þingmannsins er þessi staða ekki alveg uppi núna.
Mig langar að spyrja hana þar sem hún situr í velferðarnefnd um málefni barna- og unglingageðdeildarinnar og þau mál á landsvísu, hvort hún sjái fyrir sér að eitthvað verði gert fyrir þann hóp í fjárlögunum nú eða hvort algjörlega verði horft fram hjá þessum þáttum.
Svo langar mig að spyrja hana um 3,5% hækkun til öryrkja, hvort hún telji ekki að hækkunin eigi að halda sér, þ.e. að þrátt fyrir batnandi (Forseti hringir.) þjóðhagsspá megi láta (Forseti hringir.) þau áform sem uppi voru (Forseti hringir.) halda sér.