fjárlög 2015.
Virðulegi forseti. Hv. þingmaður lýsti því mjög vel að röksemdin gengur einfaldlega ekki upp af því að ef tekjur ríkissjóðs eiga að aukast vegna þessa hlýtur einhver nýr hópur að koma inn sem hefur ekki þurft að greiða fyrir lyfin áður.
Mér fannst líka áhugavert, svona í framhjáhlaupi, það sem hún sagði um pólitíkina, að þetta væri röng pólitík og það sem hún nefndi um að þeir sem koma inn á sjúkrahús og taka lyfin sín út þurfa að greiða en ekki hinir. Það má meira að segja velta fyrir sér því breytta mynstri að læknar fari að kalla fólk inn til að gefa því eina töflu, þá er lyfið gefið inni á sjúkrahúsi. Ég held að þetta sé vanhugsað. Það þarf að hugsa þetta mjög vel. Ég er sammála því að gott væri að fá greiningu á þessu öllu saman.
Mig langar aðeins að tala um fjármögnunina til Útlendingastofnunarinnar sem er verið að draga úr og kom upp í umræðu í gær. Hv. þm. Össur Skarphéðinsson benti á að með því að vinda áfram ofan af kúfnum og veita 50 milljónir til Útlendingastofnunar gæti ríkið hugsanlega sparað 150 milljónir eða allt upp í 300 milljónir, vegna þess að það þarf að halda hælisleitendum uppi.
Ég er sammála þingmanninum um að það megi ekki fúska við afgreiðslu á beiðni um hæli, það þarf að gera það allt mjög vel. Mig langar að vita hvort hún sé samt ekki sammála mér um það að tíminn á að vera stuttur, (Forseti hringir.) það á að gera þetta á stuttum tíma því að í þessu eins og öllu öðru er bið oft mikil angist og erfiður tími.