fjárlög 2015.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni hans ræðu. Mig langar til að spyrja út frá núverandi fjárlagafrumvarpi. Ef fram fer sem horfir blasir við niðurskurður hjá Ríkisútvarpinu upp á 600–900 milljónir á næsta ári. Ég ætlaði í upphafi að spyrja hv. þingmann að því hvar hann sæi fyrir sér að sá niðurskurður mundi birtast.
En ég heyri að hv. þingmaður hefur af þessu þungar áhyggjur eins og aðrir framsóknarþingmenn, til dæmis hv. þm. Karl Garðarsson sem hefur skipt um skoðun í málinu. Ég fagna því auðvitað að menn hafi af þessu nokkrar áhyggjur og vil spyrja hv. þingmann hvort hann telji einhverja von til þess, með þessum sinnaskiptum eða þessum yfirlýsingum hv. þingmanna Framsóknarflokksins, að menn geti fallist á breytingartillögu minni hlutans hér í þinginu um að láta óskipt útvarpsgjaldið eins og það er núna, 19.400 kr., renna til Ríkisútvarpsins.