144. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[13:53]
Horfa

Róbert Marshall (Bf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég hvet hv. þingmann til að skoða okkar tillögu vegna þess að hún hefur ekki nein áhrif á sjóðstreymi í ríkissjóði. Hún felur fyrst og fremst í sér að útvarpsgjaldið verði látið halda sér óbreytt og það renni allt saman til Ríkisútvarpsins. Það er verið að leggja til að það sé lækkað niður í 17.800 kr. og það felur í sér niðurskurð hjá Ríkisútvarpinu upp á 600–900 milljónir sem auðvitað mundi þýða að menn mundu þurfa að taka upp þjónustusamninginn og grípa til mjög róttækra aðgerða.

Ég vil nota seinni helminginn af þeirri mínútu sem ég hef til þess að spyrja hv. þingmann út í Háskólann á Akureyri. Ég held að hann geri sér ekki fyllilega grein fyrir þeim veruleika sem þar blasir við, alla vega ekki á sama hátt og sveitarstjórnarmenn á Akureyri sem lýsa yfir þungbærum áhyggjum af því sem þar er að gerast nú síðast í gær og í morgun — og ályktanir frá Félagi háskólamanna sem lýsa yfir mjög alvarlegri framtíðarsýn í þeim efnum. Ég vil hvetja hv. þingmann til þess að kynna sér það efni betur og standa í fæturna þar jafnframt.