fjárlög 2015.
Herra forseti. Ánægjulegt að heyra þetta, þetta er einmitt það sem ég hef verið að spyrja þingmenn um í dag, hvort þeir sjái sér fært að fara í jólafrí, mjög langt jólafrí — þó að þingmenn geri annað í jólafríinu en að dingla sér, eins og þeir gera sums staðar annars staðar, þá er þetta samt sem áður langt frí sem við höfum. Læknar þurfa að vera á vakt yfir jólin og yfir helstu hátíðirnar.
Ég er því algjörlega sammála og gott að fá þetta fyrir fram áður en maður spyr. Að sjálfsögðu á Alþingi ekki að fara í frí og við eigum ekki að afgreiða fjárlög fyrr en búið er að finna sátt í læknadeilunni og leysa hana.
Við getum lent í neikvæðum spíral með það að missa lækna úr landi, sem við höfum verið að gera. En nú segjast gjörgæslulæknar ætla að segja upp ef deilan verður ekki leyst fyrir áramót. Ég er því 100% sammála þingmanninum og bendi honum á kosningaloforð Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins, þeir sögðu báðir að lykilatriði heilbrigðiskerfisins væri mannauðurinn.