144. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[14:49]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P) (andsvar):

Mig langar líka að benda hv. þingmanni á að stjórnmálaályktun landsfundar Sjálfstæðisflokksins var algjörlega inni á sömu línu. Og kjósendur Sjálfstæðisflokksins, 90% af þeim, forgangsraða heilbrigðiskerfinu í fyrsta eða annað sæti og menntakerfinu, með 44%, þar á eftir. Það er því afgerandi meiri hluti kjósenda Sjálfstæðisflokksins og kjósenda allra flokka sem það vilja. Það er alveg óháð aldri, óháð efnahag. Allir landsmenn, óháð kjördæmi, vilja setja heilbrigðiskerfið í forgang. Það kom skýrt fram í könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir þingflokk Pírata í nóvember.

Í stjórnmálaályktun 41. landsfundar Sjálfstæðisflokksins nú rétt fyrir kosningar segir, virðulegi forseti, að leggja eigi skattfé fyrst í þau verkefni sem eru brýn og áríðandi. Þar er örugg heilbrigðisþjónusta nefnd fyrst. Svo tala báðir flokkarnir um að heilbrigðisstarfsmennirnir séu hin raunverulegu verðmæti heilbrigðiskerfisins, það var sagt í kosningaloforði Sjálfstæðisflokksins. (Forseti hringir.) Samt er læknum boðin 3% hækkun og sagt að allir aðrir í samfélaginu eigi ekki að sætta sig við meira, (Forseti hringir.) annars verði ekki samið.