144. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[15:01]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Ögmundi Jónassyni fyrir góða ræðu, bæði upplýsingaríka og eins og ætla mætti gagnrýna.

Hv. þingmaður kom vel inn á lýðheilsumál. Ég deili að mörgu leyti hans skoðun, enda held ég að lýðheilsa almennt hafi ekki verið flokkspólitískt þrætuepli. Við erum mjög meðvituð um mikilvægi lýðheilsu, ekki síst til þess að mæta framtíðarálagi á heilbrigðiskerfið; sem á að vera í forgangi, ég held við séum öll sammála um það.

Hv. þingmaður tengdi þetta neyslustýringu. Það hefur komið skýrt fram í skýrslu frá AGS að sykurskatturinn, eins og hann var lagður á hér á síðasta kjörtímabili, beit ekki sem skyldi, hann hefði ekki gert það.

Ég vil spyrja hv. þingmann hvort hann vilji hækka álögur enn frekar á sykur.