144. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[15:59]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (P) (andsvar):

Forseti. Það er mjög skrýtið af hverju þetta rataði ekki inn í fjárlögin. Þetta er algjörlega á skjön við þá stefnumótandi vinnu sem á sér stað í innanríkisráðuneytinu með tilstuðlan þverpólitískrar þingmannanefndar sem er skipuð af innanríkisráðherra.

Það verður að segjast eins og er að við vorum mjög hissa á að þetta væri ekki á fjárlögunum. Ég bara trúi ekki öðru en að þetta verði sett inn á fjárlög því að þetta mun eyðileggja gríðarlega mikilvæga vinnu sem átt hefur sér stað, bæði hjá fyrrverandi ráðherra, hv. þm. Ögmundi Jónassyni, og fráfarandi ráðherra sem setti þessa vinnu í gang til að byggja á þeim grunni. Þetta er alveg frábær vinna sem hefur átt sér stað, það eru allir jafn ánægðir með hana, hvort heldur þeir eru frá minni hluta eða meiri hluta eða ráðuneytinu sjálfu.