fjárlög 2015.
Virðulegi forseti. Ég hef ekki velt því sérstaklega fyrir mér, en það væri sennilega áhugaverð nálgun. Ég vil vegna samskipta minna hér við hv. þm. Guðlaug Þór Þórðarson segja, árétta það og botna, að það skiptir miklu máli að halda því aðskildu sem er reksturinn annars vegar og efnahagurinn hins vegar, að það sé algerlega ljóst hvað maður er að tala um hverju sinni og blanda því ekki saman.
Ég tek undir það sem hv. þingmaður segir hér að við getum auðvitað rætt um hlutverk Ríkisútvarpsins. En mín reynsla af því og sérstaklega af síðasta kjörtímabili er að það er ekkert mikill ágreiningur um það. Það er tiltölulega mikil samstaða um það í samfélaginu hvað við viljum sjá Ríkisútvarpið gera og hvaða hlutverk það á að hafa.
Ég held líka að það skipti mjög miklu máli að sá trúnaður sé á milli almennings og stofnunar eins og Ríkisútvarpsins að fólk upplifi það og skynji að útvarpsgjaldið skili sér. Ég er að borga þetta af því að ég vil hafa útvarp en ekki af því að einhver hluti af því eigi að fara eitthvert annað. Þetta trúnaðarsamband við Ríkisútvarpið, milli Ríkisútvarpsins og almennings, skiptir mjög miklu máli í þessu efni.