fjárlög 2015.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Guðmundi Steingrímssyni fyrir hans ræðu. Það er svolítið góð nálgun, sem hann var með í almennri umræðu um skuldaleiðréttinguna, þegar hann kom með þá ábendingu að ef menn hafi efni á að henda 80 milljörðum í að leysa vanda sem að einhverju leyti er búið að leysa geti menn ekki kvartað yfir því að það vanti pening.
En það sem mig langar að taka undir, en samtímis kannski þróa umræðuna örlítið lengra, er þetta með skort á framtíðarsýn, að hafa líka lagt fram peningaupphæðir án þess að fyrir liggi hvert verið er að stefna.
Ég tek heilbrigðismálin sem dæmi. Við vorum búin að ganga of langt árið 2012, ég hef sagt það ítrekað hér, og hættum að skera niður í heilbrigðiskerfinu. Þá birtast fjárlög frá nýrri ríkisstjórn með 1 milljarði í niðurskurð í heilbrigðiskerfinu, meðal annars í heilsugæslu, um 100 millj. kr., og síðan á Landspítalanum og víðar. Síðan er því breytt og bætt við 1,7 milljörðum en samt er alltaf gefið í skyn af ákveðnum aðilum: Það þarf að hagræða, það þarf að fækka fólki, það þarf að breyta ráðningarkjörum. Það þarf ekkert að bæta aðstöðu. Það á að byrja á því að laga úti á landi. Umræðan hefur verið algerlega út og suður án þess að það væri nein stefna. Mig langaði að deila þessu sjónarmiði með hv. þingmanni og heyra hans skoðanir á því.
Síðan endurtekur þetta sig. Það er halli á Landspítalanum um 1,5 milljarða árið 2013. Það er aftur 1 milljarður núna 2014, stefnir í það. Síðan er settur inn 1 milljarður. Á hann að borga hallann? Það er meginreglan. Á hann ekki að borga hann? Það er enginn sem er búinn að svara því.
Í þriðja lagi, sem er gríðarlega stór áfangi, að fyrsta skrefið skuli stigið varðandi nýjan Landspítala. Samt þora menn ekki að segja: Já, við ætlum að fylgja áætlun um að þetta verði tilbúið á þessum og þessum tíma miðað við þessa áætlun og höfum auðvitað þann fyrirvara að ekkert óvænt gerist.
Mig langar að heyra betur varðandi þessa þætti vegna þess að ég deili því með hv. þingmanni að það er í raun þetta sem er að valda okkur hvað mestum erfiðleikum í augnablikinu.