144. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[19:07]
Horfa

Guðmundur Steingrímsson (Bf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka spurninguna og þessa umræðu. Ég held nefnilega að það megi alls ekki gera lítið úr þessu. Hann kom hérna strax eftir hrunið Göran Person, fyrrverandi forsætisráðherra Svía, og var með fyrirlestur í háskólanum. Hann sagði að það væri lykilatriði í svona kreppuástandi að taka ákvarðanir, hafa þær skýrar og taka þær fljótt og segja fólki að þær verði erfiðar en segja fólki líka hvert sé stefnt, hvert verið sé að fara og hvar við endum ef við förum nú í gegnum þetta allt saman. Þetta fannst mér gott.

Stærstu vonbrigðin í mínum huga, ein af þeim stærri, eru þessi: Á hrunárunum hefði kannski mátt tala skýrar um það hvert var stefnt en veruleg vinna var lögð í það á síðasta kjörtímabili að smíða alls konar framtíðarsýn fyrir hitt og þetta, sóknaráætlanir, fjárfestingaráætlun; vinna var lögð í nýja stjórnarskrá og vinna var lögð í að skilgreina hvernig spítalinn ætti að vera. Ég hugsa að við mundum upplifa allt aðra stemningu í heilbrigðismálum ef menn hefðu ekki, með svolítið þóttafullum hætti, ýtt öllum þessum plönum út af borðinu þegar þeir tóku við. Menn hefðu átt að sýna meiri hógværð og auðmýkt gagnvart allri þessari vinnu og reyna að halda henni áfram. Það kom hökt á þetta. Það var eins og ætti að hætta við Landspítalann. Nú er sem betur fer búið að breyta því. Það væri allt önnur stemning ef menn hefðu haldið sig við þessi plön.

Svo vil ég segja um Landspítalann og fjárveitingar til hans: Mér finnst svo sorglegt að við þurfum að taka þennan slag á hverju einasta ári. Þetta er yfirleitt þannig að yfirstjórn Landspítalans gerir mjög raunhæfar áætlanir miðað við það hvað hún telur að muni dynja á spítalanum og hvaða þjónustu hann þurfi að veita á komandi ári. Svo gengur þetta yfirleitt út á það (Forseti hringir.) að ríkisvaldið þarf að leiðrétta hallann (Forseti hringir.) sem skapast vegna þess að spítalinn fær ekki nægar fjárveitingar miðað við áætlanir.