144. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[21:17]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég veit ekki hvort ágreiningur minn og hv. 8. þm. Suðvesturkjördæmis snúist um orðalag, hvað við eigum við með því að umræðan hafi átt sér stað. Eins og ég sagði áðan er augljóst að umræðan á sér stað þegar lögin eru sett. En ég vil meina að hún hafi ekki rist mjög djúpt, ég hugsa að við séum sammála um það, og hún þurfi vissulega að halda áfram og vera meiri og ítarlegri og dýpri. Við þurfum að endurskoða grunnþættina, hvers vegna við viljum hafa stefnuna svona eða hinsegin. En ég nenni ekkert að kýta um það, ég segi alveg eins og er, og vil bara taka undir með hv. þingmanni að þetta þarf að ræða betur og meira.

Hvað varðar það að stefnan taki fyrst og fremst mið af atvinnuhagsmunum þá veit ég að menn segja sér það en ég er samt ósammála því að sú sé raunin, vegna þess að atvinnuhagsmunir okkar, efnahagslegir hagsmunir okkar, eru fólgnir í fleira fólki. Útlendingar „taka“ ekki bara vinnu, þeir búa hana líka til. Þeir eru hluti af efnahagnum. Þeir hafa þarfir, þeir hafa langanir. Þeir þurfa að taka þátt í efnahagnum til þess að lifa hérna og þeir skapa (Forseti hringir.) jafn mörg eða fleiri störf en þeir „taka“. Ég veit að sennilega er það rétt hjá hv. þingmanni þegar hann segir að þetta hafi verið forsendurnar sem menn gáfu sér, en ég (Forseti hringir.) tel stefnuna ekki í reynd þjóna þeim (Forseti hringir.) hagsmunum.