fjárlög 2015.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Helga Hrafni Gunnarssyni um merkilega ræðu um innflytjendamál. Ég vil nú vera ósammála honum um það allra síðasta sem hann sagði þegar hann hélt því fram að umræðan hefði ekki verið tekin á djúpum nótum. Ég er þeirrar skoðunar, og byggi það á reynslu minni af síðustu ríkisstjórn, að þar hafi þessi umræða verið tekin mjög föstum tökum. Hv. þm. Ögmundur Jónasson talaði um greinargerð sem hann hefði látið gera. Það var nú einfaldlega svo að hv. þm. Ögmundur Jónasson, fyrrverandi hæstv. innanríkisráðherra, lét gera frumvarp. Það er kannski til marks um hvernig þessir hlutir eru að breytast og hvernig hugsanlega er að myndast meiri samstaða um leiðir í þessum málum að núna á ég sæti í nefnd sem fulltrúar allra flokka sitja í. Þar er verið að ræða tillögur og móta burðargrind að nýju frumvarpi sem er byggð á þeirri vinnu sem fram fór undir handleiðslu hv. þm. Ögmundar Jónassonar.
Hitt er algjörlega hárrétt hjá hv. þm. Helga Hrafni Gunnarssyni að um töluvert margra ára skeið hefur ekki nokkur maður komist til Íslands utan EES-svæðisins nema sem flóttamaður eða við einhverjar algjörlega sérstakar aðstæður.
Eitt af því sem við erum að ræða í þeirri nefnd er með hvaða hætti hægt er að breyta því. Útlendingar sem koma til Íslands auðga landið, eins og hv. þingmaður sagði, og við þekkjum öll innflytjendastigann. Þeir koma hingað og fyrsta kynslóðin vinnur oft störf sem þeir sem fyrir eru vilja ekki taka að sér og það sjáum við líka hér á Íslandi. Önnur kynslóð kemur sér miklu betur fyrir og sú þriðja verður inngróinn partur af þjóðinni.
Mig langar til þess að spyrja hv. þingmann: Telur hann ekki að það mundi spara peninga ef við mundum verja meira fé í það að vinna úr þeim kúf umsókna sem bíður bæði Útlendingastofnunar (Forseti hringir.) og innanríkisráðherra?