fjárlög 2015.
Virðulegi forseti. Ég fagna þá þeirri umræðu sem átt hefur sér stað og hvet menn til að halda henni áfram. Ég þakka hv. þingmanni Suðvesturkjördæmis og fyrrverandi innanríkisráðherra fyrir það starf sem hann hefur unnið í þeim efnum. Ég var meðvitaður um það starf.
Þá velti ég fyrir mér á móti, og ég veit ekki alveg hvort það þykir fínt að spyrja á móti þegar maður svarar andsvari, en er búið að breyta megininntakinu í stefnunni? Er spurningin hætt að vera: Af hverju ættum við að hleypa fólki inn í landið? Er hún nú orðin: Af hverju ættum við ekki að hleypa fólki inn í landið? Mér hefur alltaf fundist það skynsamlegri nálgun að hugsa með sér hvers vegna maður mundi vilja halda einhverjum úti frekar en hvers vegna maður vildi hleypa honum inn.
Ef sú umræða hefur átt sér stað fagna ég því og tek þeirri leiðréttingu fegins hendi. Ég vona að sú sé raunin, alla vega að hlutirnir séu að mjakast í þá átt.
Hvað varðar spurningu hv. 4. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður um hvort ég telji að það mundi spara peninga ef við settum meiri peninga í málaflokkinn þá held ég það, en þegar ég lít á fjárlög sé ég að þetta er umtalsverð aukning. Þarna fara 50 millj. kr. aukalega í stofnun sem hafði samkvæmt frumvarpinu fengið 236 millj. kr., þannig að þetta er talsvert mikil aukning, rúmlega fimmtungs aukning. Ég fagna því mjög mikið. Mér þætti gaman að sjá hversu vel það dugar.
Það er líka vel vitað að það er afskaplega mikill og stór stafli af uppsafnaðri vinnu af ýmsum ástæðum, auðvitað aðallega vegna peningaleysis. Ég held að við gætum sparað með því að setja meiri peninga í málaflokkinn, mig grunar það mjög sterklega. Ég mundi styðja það að prófa það. Þetta eru náttúrlega sameiginlegar tillögur minni hlutans í heild sinni en ég væri alveg til í að ganga lengra í þessum málaflokki.
Ég held líka að það mundi spara peninga að gera regluverkið þannig að ekki þyrfti að eyða miklu púðri í hverja einustu umsókn, það ætti í raun að vera einfaldara. Ég hef heldur aldrei alveg skilið hvers vegna það tekur til dæmis heila þrjá mánuði að afgreiða umsókn um (Forseti hringir.) sérfræðingaatvinnuleysi.