144. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[21:26]
Horfa

Össur Skarphéðinsson (Sf):

Herra forseti. Umræða um fjárlög á hverju ári er yfirleitt löng og ströng og það er gaman að taka þátt í henni. Þar skiptast menn á skoðunum og það er oft í kringum fjárlögin sem skurðpunktur ágreinings í stjórnmálum kristallast.

Ég hef hlustað í dag á margar spakar ræður og ég hef verið ánægður með flestar. Ég vil líka segja að ég er þakklátur þeim hv. þingmönnum stjórnarliðsins sem hafa tekið þátt í umræðunni, yfirleitt með ákaflega málefnalegum hætti og fært fram sín rök þannig að mér hefur fundist það heldur tosa umræðunni fram. Það er framför frá fyrri árum. Menn hafa í þessari umræðu gert nokkuð hina vel þekktu átakahefð íslenskra stjórnmála að umræðuefni og talað um að alþingismenn þurfi að vanda orðaval og haga orðræðunni með þeim hætti að hún sé ekki særandi og frekar stilli til samvinnu en sundurlyndis. Ég vil taka undir það. Einhver hv. þingmaður vísaði til þess að þetta hefði verið efni sérstaks málþings í háskólanum í gær þar sem Guðni Th. Jóhannesson prófessor fjallaði m.a. um þetta. Það er hárrétt. Kjarninn í ræðu hans var kannski þessi: Fulltrúalýðræðinu er ógnað og mesta ógnin kemur frá fulltrúunum sjálfum.

Ég er kominn á þá skoðun, eftir þau miklu átök sem hafa verið síðustu árin, að menn eigi að reyna að stilla þessum átökum í hóf og sér í lagi um það sem er grundvallarlínan í verklagi hvers þings. sem eru fjárlögin. Ég segi skýrt eins og ég hef þegar áréttað að hv. þingmenn stjórnarliðsins eru í sjálfu sér ekki öfundsverðir. Það er oft ákaflega erfitt hlutskipti að vera þingmaður, sérstaklega nýr þingmaður skömmu eftir kosningar, ég tala nú ekki um þegar átök hafa verið hatrömm og sterkar og stríðar yfirlýsingar hafa verið gefnar.

Ég hef stundum sagt að erfiðasta hlutskiptið sem ég hef lent í er einmitt það að vera nýr þingmaður í ríkisstjórn sem var að taka við og hafði margt á prjónunum. Þó verð ég að segja að hlutskipti þeirra sem núna eru partur af stjórnarliðinu er betra en okkar sem þá stigu ný á þing. Við vorum líka full fyrirheita og höfðum gefið efnisríkar upplýsingar um það hvernig við vildum haga okkar störfum. Þá bar svo við öllum að óvörum að það brast á kreppa sem enginn sá fyrir. Skyndilega dró verulega úr því sem var undirstaðan í okkar framleiðslu, þorskaflanum. Það átti enginn von á því. Við þær aðstæður þurfti að draga mjög skarpt úr fjárveitingum til ýmissa góðra mála. Þegar upp var staðið 1995, en sú kreppa stóð reyndar fram á mitt ár 1996 samkvæmt hagfræðingum, kom í ljós að þetta var dýpsta kreppa frá kreppunni miklu þangað til þá sem reið yfir 2008 bar að garði. Hv. þingmenn eins og t.d. Karl Garðarsson, sem hér hlýðir með hleyptar og gneypar brýn á mál mitt, eru þó í betri stöðu en við sem stigum vorið 1991 nýir inn á þing vegna þess að hann býr þó að því að þeir sem á undan fóru lögðu á sig mikil átök og mikið erfiði til að ná Íslandi upp úr þeirri djúpu kreppu sem landið kom í. Sá ágæti hv. þingmaður býr að því að öll „fúndamentin“ í efnahagslífinu voru í lagi þegar hann settist fyrsta skipti inn á þing. Það er í sjálfu sér öfundsvert hlutskipti.

Eigi að síður kannast ég auðvitað sjálfur við það að oft eru átök á milli stjórnarflokka og við höfum ekki farið varhluta af þeim heldur núna. Það er erfitt að þurfa að beygja af. Í þessari umræðu er stundum vísað til þess að það hafi aldrei gerst áður að heill þingflokkur hafi lagt fram fyrirvara við heilt fjárlagafrumvarp og það er rétt. Það hefur sennilega aldrei orðið með þeim hætti sem þingmenn Framsóknarflokksins gerðu. Ég stóð þó í þeim sporum haustið 1991 sem nýr þingmaður, nýr þingflokksformaður Alþýðuflokksins, að leiða alla mína óbreyttu þingmenn til þess sem var töluvert erfitt verkefni á þeim tíma; að sitja hjá við fjárlagafrumvarpið. Það þótti á sínum tíma tilefni stjórnarslita og vafalaust var það. Sú ríkisstjórn tórði þó. Kannski er það svo að hinum óbreyttu þingmönnum Framsóknarflokksins blöskraði svo þegar forusta þeirra kom inn í þingflokkinn með þá svakalegu afurð sem má kalla að hækkun matarskattsins sé að þeir afréðu að stíga þetta skref og ég segi einungis: Þökk sé þeim. Það skiptir máli að menn standi við sína sannfæringu.

Hitt er svo annað mál að þó ég hafi hrósað hv. þm. Karli Garðarssyni fyrir það hversu rösklega hann stóð við hana, og það ber að hrósa mönnum fyrir slíkt því það er mjög erfitt í þeirri stöðu sem nýir þingmenn eru gagnvart nýrri ríkisstjórn sem vill keyra fram sitt prógramm, að ég hefði gjarnan viljað sjá endataflið teflt dálítið öðruvísi. Það urðu mér mikil vonbrigði þó að ég ætli ekki að gera það að meginefni ræðu minnar að sjá Framsóknarflokkinn lyppast niður í málinu vegna þess að í því máli geri ég allt aðrar kröfur til hans en annarra flokka. Það var ekki síst fyrir innblástur úr Framsóknarflokknum sem ég lagði á sínum tíma fram þá tillögu sem leiddi til þess — ég var í stjórnarandstöðu þá — að menn fóru þá leið að lækka matarskattinn. Og hvað var það sem sannfærði mig? Það voru innblásnar ræður góðra og gegnra framsóknarmanna sem sátu þá í þessum sölum og voru úr bændastétt. Það voru menn eins og Guðni Ágústsson og Páll Pétursson sem bókstaflega bjuggu til rökin fyrir mig. En það verður hver að fljúga sem hann er fiðraður. Ég hef staðið í þessum sporum og ég get ekki annað en fundið til með þessum hv. þingmönnum, en það kemur að því að þeir munu læra og stundum þurfa menn að ganga í gegnum dimman dal til að læra. Á þeirri dalsferð er Framsóknarflokkurinn núna. Þetta þekki ég allt saman. Árið 1995 stóð ég hér enn þá þingmannsstauli, ég skal ekki segja að ég hafi verið blautur á bak við eyrun en grænn var ég enn þá, og horfði framan í skoðanakannanir sem í mínu kjördæmi hljóðuðu upp á 1,5%. Það voru töluvert erfiðar stundir. Ég ímynda mér að hv. þingmenn Framsóknarflokksins sem unnu einhvern glæsilegasta kosningasigur sem hér hefur verið unninn svo ég muni til finnist líðanin oft erfið. Þá eiga þeir, ef hún heldur áfram að vera þung, að minnast þessara orða minna. Þeir einir sigra hina pólitísku veröld sem ná því að vera trúir sannfæringu sinni. Þess vegna ber ég alltaf virðingu fyrir þeim sem a.m.k. berjast til þess og geri mér meira að segja grein fyrir því að í sumum tilvikum er það erfitt.

Varðandi fjárlagafrumvarpið sem hér liggur fyrir er það ekki versta fjárlagafrumvarp sem ég hef séð og heldur ekki það besta. Miðað við þá pólitík sem a.m.k. Sjálfstæðisflokkurinn hefur er það bara býsna gott. Ég mundi hins vegar segja þar sem mér þykir vænt um Framsóknarflokkinn að það sé ekki nógu gott frá hans sjónarhóli. Það gætir ekki þeirrar félagshyggju sem löngum var aðall og hryggjarstykki Framsóknarflokksins. Hitt get ég sagt að ég áfellist engan. Ég veit að það er erfitt að vinna fjárlagafrumvarp og það fólk sem situr í fjárlaganefnd hefur án efa gert allt sitt besta. Þá undanskil ég ekki hv. formann fjárlaganefndar sem er kannski eina manneskjan sem hefur þó stundum í þessari umræðu vikið, að mér þykir, fullgráglettnum orðum að mínum flokki vegna þess að við erum einungis að tala fyrir því sem er Íslandi fyrir bestu. Þannig eru stjórnmálin. Lýðræðið speglast kannski aldrei jafn nakið og í umræðu um fjárlögin. Af hverju? Vegna þess að þar keyra flokkarnir fram sínar stefnur. Þar birtist það hvort menn fylgja þeirri forgangsröð sem ég segi að byggi á klassískri jafnaðarstefnu eða einhverju öðru. Ég segi það fullum fetum að forgangsröð Sjálfstæðisflokksins finnst mér oft fyrst og fremst bera keim af hagsmunum auðvaldsins, eins og við sögðum í gamla daga, við Ásmundur Einar Daðason þegar við vorum báðir, á mismunandi tímaskeiði þó, í faðmi sósíalistanna á Íslandi. Þegar hv. þm. Vigdís Hauksdóttir hefur sagt mörgum sinnum í þessari umræðu eða kallað fram í að forgangsröð ríkisstjórnarinnar sé að setja heilbrigðismálin númer eitt þá veit ég að hún meinar það. En ég er þeirrar skoðunar að verkin skipti máli og sýni annað. Þá á ég við eftirfarandi: Forgangsröð ríkisstjórnarinnar speglaðist strax á fyrstu dögunum þegar menn afsöluðu sér mikilvægum tekjulindum eins og auðlegðarskattinum, en ég veit að hægt er að deila fast á hann. Hún birtist líka í því að menn lækkuðu veiðigjaldið og afþökkuðu sömuleiðis skatttekjur sem fólust í því að sópa burt undanþágum sem tengjast virðisaukaskattlagningu á ferðaþjónustu. (Gripið fram í: En þrotabúin?) Við skulum aðeins ræða þrotabúin og hv. þingmaður veit allt um mína afstöðu til þess máls. En einn þingmaður sem er mér miklu tölugleggri sló á að þegar allt er talið gætu það verið 40–50 milljarðar á ári sem þannig sytra í burtu. Þetta er val.

Tökum auðlegðarskattinn sem dæmi. Hann er vissulega í tilteknum tilvikum ósanngjarn. Það er hægt að færa rök að því að hann komi illa við aldraða Íslendinga sem ekki hafa fast tekjustreymi en búa í stórum eignum, það er hárrétt. Þess vegna var það skoðun okkar nokkurra að í staðinn fyrir að afnema auðlegðarskattinn og í staðinn fyrir að halda honum fram óbreyttum ætti að breyta honum með þeim hætti að það verji þetta fólk. Þetta er spurning um vilja, ekki tæknilega útfærslu. Í þeirri stöðu að Ísland hefði getað verið búið að sigla hraðbyri upp úr öldudalnum og hefði fram undan gósentíð, eins og t.d. blasti við okkur sem settumst í ríkisstjórn 2007, kemur fyllilega til greina að skoða skattalækkanir. Það er alveg eins og þegar fyrirtæki þegar vel gengur kaupa upp sín eigin bréf. Þau eru að miðla eignum og tekjustreymi til eigenda sinna. Við þær aðstæður að ríkinu eru að safnast sjóðir er sjálfsagt að velta því fyrir sér að lækka skatta. En í þeirri stöðu sem við erum núna, jafnvel þótt hægt sé að teikna framtíðina fallega upp og ég vona svo sannarlega að það gangi eftir, blasir eigi að síður við ein nöturleg staðreynd og hún er þessi: Við erum að borga 62–64 milljarða á hverju ári í vaxtagjöld umfram það sem við fáum í vaxtatekjur. Þá er spurningin: Hvernig getum við náð þessu niður til framtíðar? Hvernig getum við búið til svigrúm sem er hægt að nota til góðra verka og til að bæta framtíð barnanna okkar? Það er með því að greiða niður skuldir. Það er við þær aðstæður sem ég hefði í sporum hv. þingmanna stjórnarliðsins velt þessu að minnsta kosti dyggilega fyrir mér áður en ég tók þá ákvörðun að ýta þessum tekjumöguleikum ríkisins frá.

Ef það er eitthvað sem kemur mér á óvart í frumvarpinu þá er það í reynd hvað afgangur á fjárlögum er lítill, 4 milljarðar. Auðvitað trúi ég því ekkert, ég er búinn að vera svo lengi hérna að ég sé alveg hvar er verið að setja inn fyrningar fyrir næsta ár og það er bara allt í lagi. Það er háttur góðra bænda, alveg eins og þegar hv. þingmaður og formaður fjárlaganefndar, Vigdís Finnbogadóttir … [Hlátur í þingsal.] Herra forseti. Sú stund er ekki komin að ég geri hv. þingmann Vigdísi Hauksdóttur að forseta. En þegar hv. þingmaður stendur hér að tillögu um að arður af bönkunum á næsta ári verði 13 milljarðar, þá spyr ég hver trúir því? Hann verður miklu meiri. Menn þurfa ekki annað en að líta hérna yfir götuna frá skrifstofum okkar alþingismanna á Landsbankann og við sjáum hvað er að gerast þar. Hann er í óðaönn að selja eigur sínar, og í góðu lagi með það, þó ég hefði að vísu viljað að það væri gert með öðrum og opnari hætti. En hann er að selja eigur sínar og það er eftirspurn eftir þeim. Það þýðir að hann er að fá peninga inn til sín, eigið fé hans hækkar. Hver var helsti happdrættisvinningur ríkisstjórnarinnar í fjáraukalögunum? Þeir greiddu út part af þessu eigin fé. Þannig mun það líka verða á næsta ári og því segi ég að það er óhætt að gera ráð fyrir því að af bönkunum á næsta ári muni tekjurnar verða 5–10 milljörðum meiri. Það er gott fyrir Ísland. Það kemur þá vonandi fram í því að menn greiði niður skuldir. Mér fannst Framsóknarflokkurinn vera allt of bráður gagnvart auknum bankaarði í ár. Hann var búinn að ná því fram að skuldaniðurfærslan var samþykkt og ég var samþykkur því að fara þá leið þó ég teldi hins vegar að 20 milljörðum af þeirri upphæð hefði verið varið með röngum hætti.

Hér var kallað fram í áðan og meðan ég man er rétt að svara því: Hvað með skattinn af fjármálafyrirtækjunum? Ég þarf ekkert að verja í þeim efnum. Ég skrifaði greinar um það löngu fyrir kosningar að ég teldi að það ætti að afnema undanþágurnar sem slitabúin fengu að njóta. (Gripið fram í: … að skrifa greinar.) Hv. þingmaður veit ekkert um hvað ég gerði meira en það, en ég eins og hún var í liði. (GÞÞ: Ekki tókstu eftir …) Jú, ég nefnilega gerði það. Ég gerði það, hv. þingmaður, bæði í sjónvarpsþætti og í greinum. Og ef það er eitthvað sem ég aldrei gleymi er það að lyfta og hefja hv. þm. Guðlaug Þór Þórðarson til skýjanna þá sjaldan honum ratast skynsamlegt orði af munni í þessum efnum. (Gripið fram í.)

Herra forseti. Ég ætla að greina frá því hvaða fyrirvara ég hef á skattlagningu slitabúanna. Ég tel að hún eigi rétt á sér og ég tel að hún standist lög á meðan menn vinna að því að gera upp við kröfuhafa. En ef þeir samningar eru látnir reka á reiðanum, kannski árum saman, tel ég að sú skattlagning stappi nærri eignaupptöku. Ég tel að það sé þá komið út fyrir það sem jafnvel íslensk lög leyfa og örugglega það sem ákveðnir sáttmálar, tilskipanir EES leyfa. Þetta er áhyggjuefni. Þetta er ekki bara áhyggjuefni fyrir Framsóknarflokkinn og ríkisstjórnina, líka mig, okkur hérna. Það er alltaf hægt að hugsa alla hluti út frá því hvernig best gæti gengið og hvernig verst gæti gengið. Það sem gæti verst gerst varðandi þessi mál er ef þær málsóknir sem búið er að boða vegna þrenns konar skattlagningar ríkisins á slitabúunum gengju upp. Ég er nú ekki að spá því. (Gripið fram í: Það gengur aldrei upp.) En ég ætla hins vegar að halda því fram að það nálgist eignaupptöku ef þessi skattur, sem ég er þó samþykkur, er látinn dandalast árum saman og það sé á þann hátt sem menn ætla að taka peninga út úr þeim.

Um hitt vil ég líka segja, um svigrúmið fræga, að það var auðvitað síðasta ríkisstjórn sem bjó til það sem Framsóknarflokkurinn kallaði haglabyssur og kylfur sem hann ætlaði að nota til að ganga með á þrotabúin (VigH: Þið þorðuð því ekki.) Við gerðum það, við bjuggum þetta til á frægum kvöldfundi hér 12. mars árið 2012. Þá er rétt að rifja upp að flokkur formanns fjárlaganefndar treysti sér ekki til að styðja það, en hann gekk þó ekki jafn langt og flokkur hv. þm. Guðlaugs Þórs Þórðarsonar sem beinlínis greiddi atkvæði gegn því, greiddi atkvæði gegn hagsmunum Íslands í því máli. (Gripið fram í.) Það skiptir máli.

Síðan er annað varðandi það mál sem rétt er að rifja upp. Þá var borðleggjandi að fara í samningagerð — sem Framsóknarflokkurinn stoppaði rétt fyrir kosningarnar 2013, um páska — sem Seðlabankinn hafði undirbúið og hefði getað skilað Íslandi einmitt þessu 300 milljarða svigrúmi sem Framsóknarflokkurinn lofaði síðan að nota með tilteknum hætti. Það gæti verið að renna úr höndum okkar núna vegna þess að það er ágreiningur á millum Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins um hvaða leið á að fara. Það skyldi þó ekki vera að þetta kjörtímabil hnigi til viðar án þess að menn hefðu fengið krónu út úr þeim samskiptum, út úr þeim 300 milljörðum sem bókstaflega lágu á borðinu, vegna þess að ríkisstjórnin hefur ekki getað komið sér saman. Þetta er hættan. Þarna er háskinn. Um það gætum við rætt síðar og við betra tækifæri þótt ég gæti alveg hugsað mér að taka um það umræðu við hv. þingmann. En ég held að ríkisstjórnin sé þarna komin í háskaför og ég óttast að á mánudaginn verði kynntar leiðir sem eru verri en þær sem lágu á borðinu eftir að síðasta ríkisstjórn kvaddi.

Nú ætla ég hins vegar að taka upp kurteisara hjal og miklu betra, koma mér vel við fjárlaganefnd og ekki síst hv. formann, Vigdísi Hauksdóttur. Í sjálfu sér er búið snúa við hverjum steini í fjárlagafrumvarpinu og benda á allt það sem gott er og líka það sem slæmt er. Ég vil þá segja, til að mín afstaða liggi fyrir um breytingartillögurnar, að ég held að segja megi að næstum því allar breytingartillögur meiri hlutans horfi til betri vegar. Þær gera frumvarpið betra. Í fjárlagavinnunni gerist það hins vegar oft að mál lenda utan vegar, stundum lítil mál en þau skipta samt máli. Hér í kvöld hafa félagar mínir í stjórnarandstöðunni farið með himinskautum, eðlilega, og sýnt fram á ýmislegt sem eru stórkostlegir skavankar. Það eru tvö, þrjú smámál miðað við stóra samhengið sem mig langaði til að drepa á.

Hv. þm. Helgi Hrafn Gunnarsson gerði málefni útlendinga að umræðuefni áðan. Ég hef í nokkrum andsvörum gert það líka. Ég tel að þegar menn eru að vinna fjárlög þá detti svona mál stundum út vegna misskilnings eða mistaka eða pólitískar skoðanir neyða menn til að ýta þeim til hliðar. En varðandi hælisleitendur held ég einfaldlega að það hafi orðið mistök og ég tel að menn eigi að skoða þau mál betur. Ég ætla að rökstyðja það með eftirfarandi hætti: Þó að verið sé að bæta við 51 millj. kr. til Útlendingastofnunar og til málaflokksins eru samt sem áður fjárveitingar til þess málaflokks sem skilgreina má sem hælisleitendur og er í ráðuneytinu annars vegar og hins vegar hjá Útlendingastofnun aðeins of litlar. Ég tel að það vanti 50 millj. kr. Annars vegar vantar 21 millj. kr. til að halda áfram vinnu sem hefur verið í mjög góðum gangi innan innanríkisráðuneytisins við að vinna niður kúf umsókna hælisleitenda sem eru á borði þeirra. Það voru settir að ég held fjórir tímabundnir starfsmenn í það og hefur gengið svakalega vel. Það vantar hins vegar svolítið upp á til að hægt sé að koma málum í það horf sem lögin sem við samþykktum samhljóða síðasta vor mæla fyrir um, þ.e. að málsmeðferð hælisleitenda taki bara 90 daga.

Nú geta menn sagt sem svo: Hvaða máli skiptir það? Þeir bíða þá bara svolítið lengur. Þetta skiptir auðvitað máli út frá þeim sem bíða vegna þess að þeirra líf er miklu þungbærara og erfiðara og þeir vita ekki hvort þeir fá að vera eða hvort þeir fara. Það er önnur hlið á þessu líka sem er mín hlið, ykkar, hlið skattborgarans. Ef meðferð mála hælisleitenda dregst úr hófi og ekki tekst að halda vinnsluhraðanum við 90 daga þýðir það kostnað fyrir okkur. Það þýðir að greiða þarf umönnunar- og dvalarkostnað. Við gætum ekki jafnvel þó við vildum vísað þessu fólki á dyr. Við höfum alþjóðlegar skuldbindingar og við megum það einfaldlega ekki. Þetta er kostnaður sem vindur upp á sig. Þá er hin hliðin á þessu máli, sú sem snýr að Útlendingastofnun. Þar var líka vinna í gangi við að vinna niður þennan langa hala og hefur tekist ákaflega vel með tímabundnum fjárveitingum til að fjölga starfsmönnum. Þar vantar 29 millj. kr. upp á það að hægt sé að halda hraðanum og taka á langerfiðustu málunum og það eru þau sem eru okkur dýrust. Ég bið hv. þingmenn í fjárlaganefnd að skoða hvort það mundi ekki spara tvö- til sexfalt þessa upphæð ef framlögin héldu áfram. Sama hvaða skoðanir menn hafa á málaflokknum, á Útlendingastofnun og innanríkisráðuneytinu í þessu, held ég að þetta séu einföld skynsemisrök. Með því að setja 50 millj. kr. meira í málaflokkinn er hægt að spara 100–300 millj. kr. og það er skynsamlegt að skoða það.

Að öðru leyti út af þeirri umræðu sem var hér áðan og af því að skipti hafa orðið í innanríkisráðuneytinu þá vil ég segja að ég tel að hv. þingmaður Hanna Birna Kristjánsdóttir hafi, hvað sem á undan hefur gengið, skilið við þennan málaflokk þannig að það er sómi að. Það er einfaldlega þannig að innan innanríkisráðuneytisins núna er komin mikil þekking, hún sótti nýtt fólk sem skilur þetta vel, vinnur þetta vel. Hvernig get ég sagt þetta í ræðustól? Vegna þess að ég lét draga mig í það eiginlega nauðugan viljugan að taka sæti í nefnd þar sem fulltrúar allra flokka sitja og vinna að þessum málum og nýju frumvarpi til laga um útlendinga. Það sem er nýtt og jákvætt í þeim efnum er að ég tel að nefndinni muni takast það sem ég hafði enga trú á í upphafi, að skila frumvarpi sem menn eru sammála um. Það er mjög mikilvægt í svona erfiðum málaflokki. Og við þá hv. kollega mína sem eru í fjárlaganefnd undirstrika ég það að við erum að fá nýjan innanríkisráðherra og ég held að Alþingi eigi ekki við þær aðstæður að skilja við málaflokkinn í uppnámi þegar hún tekur við. Ég mælist til að hv. þingmenn skoði þetta.

Mér hefur alltaf verið lagt það til lasts, herra forseti, að ég er ekki góður í kjördæmapoti og ég er alltaf miklu betri í því að reyna að vinna öðrum kjördæmum gagn. (VigH: … líka.) Þarna erum við sammála, ég og hv. þm. Vigdís Hauksdóttir og kannski getum við þá sameinast um eftirfarandi aðfinnslu mína. Ég tók mína fyrstu háskólagráðu við Háskóla Íslands. Eiginkona mín vinnur þar. Mér þykir vænt um þann skóla. Ég gladdist þegar sá skóli fékk að ég held á þriðja hundrað milljóna aukreitis milli umræðna. Einnig fékk Háskólinn í Reykjavík töluvert mikið. Nú er rétt að ég taki það fram að ég er ekki einn af þeim sem tel að sameina eigi HR við HÍ. Ég tel að samkeppni á háskólastigi hafi skilað góðu og mér finnst sá skóli vera að marka ákveðin spor sem ég er þakklátur fyrir. En á sínum tíma var ég einn af þeim sem barðist með þeim í liði sem vildu setja upp Háskóla á Akureyri. Menn spáðu honum ekki góðu. Ég taldi að hann yrði að minnsta kosti mikilvæg byggðaaðgerð og ef vel tækist til þá yrði hann marktækur háskóli. Til þess þyrfti hann þá peninga til rannsókna því enginn háskóli verður marktækur nema hann geti sinnt rannsóknum. Skólinn hefur sýnt það að hann gerði í blóðið sitt, að vísu með öðrum hætti en ég taldi í upphafi. Ég taldi að hann ætti að byggja sig upp á grundvelli sérstöðu í sjávarútvegi en það fannst mér einhvern veginn ekki takast þannig að hann skaraði fram úr, a.m.k. ekki fram úr þeirri miklu stofnun sem við höfum við Sæbrautina. En hann reisti sig á öðru sviði sem ég tel að hann hafi alla burði til að skara fram úr, ekki bara hér á landi heldur vítt um lönd, og það var á sviði norðurslóða. (VigH: …sammála.) Já, við erum sammála um það. Ég hef á mínum þingferli reynt að styðja við Háskólann á Akureyri og sérstaklega ýta undir norðurslóðastarf hans.

Mig rak í rogastans þegar ég sá að ríkisstjórnin var að láta til háskólanna 611 millj. kr. meira milli umræðna og af því fékk Háskólinn á Akureyri einungis 10,3 millj. kr. Þá hugsaði ég: Hér er ekki bara vitlaust gefið, þetta er ekki þannig, hér hljóta að hafa orðið einhver mistök. Þetta eru mistök. Það er hárrétt að það á að umbuna Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík fyrir það hvernig þeir opnuðu sínar dyr fyrir ungu fólki sem var atvinnulaust á kreppuárunum, en það gerði Háskólinn á Akureyri líka með ýmiss konar hætti. Ranghverfan á því máli var að það var alls staðar skrúfað niður, m.a. þar, og leiddi til þess að Háskólinn á Akureyri þurfti mjög skjótt að aðlaga sig gerbreyttum fjárhagslegum aðstæðum. Það bjó til hala sem hann hefur á sjö árum borgað til baka. Herra trúr, á að launa honum það að halda sig innan við svona erfiðan ramma með þessum hætti? Þetta tel ég að hv. þingmenn í fjárlaganefnd eigi að skoða sérstaklega.

Svo er ég líka þeirrar skoðunar, og nú veit ég að það rísa hárin á höfði hv. þm. Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, að það séu mistök að ekkert skuli vera í fjárlagafrumvarpinu um Bankasýsluna. Ég er þeirrar skoðunar að það sé stofnun sem eigi að halda áfram enn um sinn. Á sínum tíma var hún búin til til að fara með eignarhluta ríkisins í fjármálalegum stofnunum. Við héldum þá, alveg eins og ríkisstjórnin þegar hún tók við fyrir 18–20 mánuðum, að það mundi ganga nokkuð hratt fyrir sig. Það var ekki svo. Enn þá er ýmsu ólokið. Ég held að það sé ekkert gott fyrir stjórnmálin að stórir hlutir í fjármálalegum stofnunum, sem hafa verið í stofnun eins og þessari sem er haldið í meira en seilingarfjarlægð frá ráðherrunum, skuli allt í einu koma inn á borð þeirra í ráðuneytinu. Það er ekki heilbrigt og mun kasta rýrð á ríkisstjórnina. Það mun leiða hana í alls konar aðstæður þar sem menn geta tortryggt hana. Það eru 70 millj. kr. sem þarf í Bankasýsluna. Ég skal vera fullkomlega ærlegur um það af hverju ég vil að hún haldi áfram. Eftir fund í efnahags- og viðskiptanefnd þar sem menn voru að ræða um málefni sparisjóðanna kom fram að Bankasýslan skilur það mjög vel að algerlega nauðsynlegt er að hér verði á markaði einhvers konar fjármálalegar einingar eins og sparisjóðirnir voru og gætu orðið. Til þess að það verði þarf hins vegar að skoða þá og koma með tillögur. Ég segi það þá hreint út að ég tel að eins og staðan er komi ekki til greina að Arion banki fái að taka yfir sparisjóðinn Afl á Siglufirði. Sá sparisjóður er algerlega nauðsynlegur til að búa til rekstrareiningu innan sparisjóðafjölskyldunnar sem er lífvænleg. Ef Arion banka á að takast að fella þann sparisjóð með því að taka hann yfir, alveg eins og hann tók yfir Sparisjóðinn á Ólafsfirði, erum við að tryggja framtíð á bankamarkaði sem að lokum mun verða þannig að það verða tveir stórir bankar og engir sparisjóðir og þetta er hættan. Ég segi það vegna þess að ég sat í síðustu ríkisstjórn og ég þekki viðhorfið til sparisjóðanna í stjórnkerfinu. Ég vil því hafa Bankasýsluna til að sjá um sameiningu sparisjóðanna. Ég vil ekki að þetta lendi inn á skrifborðum embættismannanna. Þetta segi ég algerlega skýrt, herra forseti. Þetta er mín sannfæring. Ég tel að það væri mikill skaði ef menn tækju ekki mið af breyttum aðstæðum sem eru þær að tekið hefur lengri tíma að endurreisa eignir ríkissjóðs sem eru í fjármálalegum stofnunum, fyrir utan það eins og ég var þegar búinn að segja, að það gæti orðið mjög óheppilegt fyrir fjármálaráðherra. Það er miklu betra að hafa þetta eins og það er.

Herra forseti. Ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra en þó vil ég segja að ég tel að síðasta ríkisstjórn hafi skilað miklu betra búi en menn hafa almennt skilið. Það er að renna upp fyrir mörgum hvað grunnstoðirnar voru í reynd traustar. Ég man það eins og það hefði verið í gær þegar sú spá kom að atvinnuleysi mundi fara upp í 14%. Það fór þó aldrei meira en að sleikja 10%. Ég man það líka þegar því var spáð að hér yrði viðvarandi samdráttur um nokkurra ára skeið. Viðskilnaðurinn var þannig, hvað sem okkur finnst um síðustu ríkisstjórn, að hin núverandi tók við góðu búi og henni hefur tekist býsna vel að sigla þeirri skútu áfram. Ég held að það hafi ekki verið erfitt. Ég hef ýmislegt að athuga við ýmis stefnumál hennar, sérstaklega hvernig hún hefur forsómað að nýta ýmsa tekjumöguleika til að greiða niður skuldir ríkissjóðs, en hún gerir margt vel eins og allar ríkisstjórnir. Allar gera ýmsa hluti þokkalega. En það eru samt váboðar fram undan. Mér finnst til dæmis að ríkisstjórninni gangi ekki nægilega vel að koma upp stórum framkvæmdum, stórum verkefnum. Það eina sem henni hefur tekist í því efni eru verkefni sem hún tók við.

Ég verð að segja alveg eins og er að mér brá í brún þegar ég las skýrslu Hagstofunnar frá því í morgun þar sem öllum að óvörum var sýnt fram á að hagvöxtur er með allt öðrum hætti en menn ætluðu. Það hefur verið hagvöxtur á Íslandi í fjögur ár. Grunnurinn að því var framlag síðustu ríkisstjórnar. Við munum að það voru spár sem þessi ríkisstjórn byggði á um að hagvöxtur mundi halda áfram og hann yrði meiri en þau 2,1–2,6% sem við spáðum að yrði á þessu ári og jafnvel 4–5% á næsta ári. Mönnum lá mikið á. Í dag kemur í ljós að hagvöxtur fyrstu níu mánuði þessa árs er ekki 3%, hann er ekki 2%, hann er ekki einu sinni 1%, hann er 0,5%. Það eru fram undan váboðar sem við þurfum að skoða mjög rækilega. Þess vegna segi ég það að ríkisstjórnin á að velta því fyrir sér, vegna þess að ég held að það sé töluvert bólstur að finna í fjárlagafrumvarpinu, hvort nú sé ekki tími til að fara í stórar framkvæmdir eins og að byggja Landspítala. Ég held að eitt af því heilladrýgsta sem við gætum gert fyrir okkar þjóð væri að setja meiri peninga í að flýta hönnuninni. Hv. þm. Jón Þór Ólafsson hefur spurt hér hvern mann hvort hann óttist ekki spíralinn sem felst í því að læknar eru í verkfalli, hafa lág laun og leita til útlanda. Jú, ég óttast hann, en eitt af því sem hvetur flóttann er að spítalinn er að grotna niður. Hann rúmar ekki einu sinni sum nýjustu rannsóknartæki af því að spítalinn ber þau ekki. Starfsmenn þar eru veikir út af myglusveppi. Þetta er eitt af því sem hefur gert það að verkum að íslenskir læknar fara og leiðir til þess að ungir læknar koma ekki aftur. Menn voru reiðubúnir til að koma heim og vinna sinni þjóð vel vegna þess að þeir höfðu ákveðið svigrúm, þeir fengu tæki og það sem skiptir kannski mestu máli, þeir blönduðu geði við unga lækna sem komu frá öllum fremstu háskólum heimsins. Sérstaða Íslands í læknavísindunum er smæðin. Læknar með framhaldsmenntun þurfa að fara til New York, til Karolinska, til Bretlands og þegar þeir koma aftur, þá eru þeir alltaf með nýjustu þekkinguna. Þetta var hinn sannkallaði bræðslupottur og það er þess vegna sem segja má, þrátt fyrir smæð íslenska samfélagsins og smæð Landspítalans, að Landspítalinn sé í topp fimm til topp fimmtán í öllum helstu meinsemdum sem leggja mann að lífi, ef frá er talinn of hár aldur. Það er dálítið makalaust. Við skulum heldur ekki gleyma því þegar við tökumst á um stjórnmálin að Ísland er þrátt fyrir allt í góðu lagi. Þótt menn séu að tala um að heilbrigðismálin séu í erfiðu horfi, og það er rétt að stefnan til framtíðar er ekki góð en eins og hún er nákvæmlega núna þá búum við samt við frábært heilbrigðiskerfi sem enn í dag, þrátt fyrir niðurskurðinn sem við sem sigldum skútunni gegnum kreppuna neyddumst til að grípa til, er þannig að ef menn á annað borð þurfa að verða alvarlega sjúkir eða fyrir bíl þá er gott að það gerist á Íslandi — út af Landspítalanum.