fjárlög 2015.
Þremur árum áður en hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson varð heilbrigðisráðherra voru jafn margir læknar á Landspítalanum og eru í dag. Það sem hefur breyst síðan er að þjóðin hefur elst og henni hefur fjölgað. Þess vegna hefur álagið aukist verulega.
Ég er sammála því mati að það verður að hækka laun lækna. Ég get út af fyrir sig áfellst ríkisstjórnina fyrir að hafa ekki beitt sér í því. Hversu mikið á að hækka þau er spurning sem ég held að hv. þingmaður mundi spyrja mig, því að hann hefur með mismunandi hætti flutt þessa sömu ræðu 200 sinnum, segir hann sjálfur, en hún er aldrei leiðinleg. Læknar segja sjálfir: Við höfum dregist aftur úr tilteknum viðmiðunarhópum. Það þarf að semja út frá þeim mun. Það er málið.
Síðan er ég reiðubúinn í hvers konar virkni til þess að tryggja það sem hv. þingmaður hefur verið að biðja um, að þingið sjái til þess að það verði ekkert jólahlé nema samið verði við lækna áður.