144. löggjafarþing — 43. fundur,  8. des. 2014.

störf þingsins.

[10:43]
Horfa

Þorsteinn Sæmundsson (F):

Hæstv. forseti. Í morgun komu á fund hv. efnahags- og viðskiptanefndar bankastjóri Landsbankans ásamt samstarfsmönnum og fulltrúi Bankasýslu og forstjóri Samkeppniseftirlits vegna sölu Landsbankans á Borgun og fyrirhugaðrar sölu á fyrirtækinu Valitor. Það verður að segjast alveg eins og er að þessi heimsókn í morgun svaraði ekki þeirri spurningu hvers vegna hlutur ríkisins eða Landsbankans í Borgun var ekki seldur í opnu ferli. Hún varð ekki til þess að slá á áhyggjur þess sem hér stendur um að farið verði með hlutinn í Valitor eins og æskilegast væri, þ.e. að selja hann í opnu ferli. Þessi heimsókn varð heldur ekki til að slá á þær áhyggjur að hlutafélög í eigu ríkisins, þ.e. að verulega vanti upp á eigendaaðhald með þeim fyrirtækjum. Ég gæti nefnt fleiri en bara Landsbankann. Ég held að það hljóti að verða mjög fróðlegt að fylgjast með hvernig þetta mál á eftir að þróast og ég held að það verði mjög athyglisvert að fylgjast með næsta hluthafafundi í Landsbankanum þar sem ríkið fer jú með 98% hlutafjár í þeim banka. Ég held að það hljóti að vera að þeir menn sem hafa farið fram af nokkru yfirlæti gagnvart löggjafanum gangist þá við ábyrgð sinni sem þeir telja sig ekki þurfa að standa fyrir fyrir framan þingnefnd Alþingis, að þeir gangist þá við ábyrgð sinni á hluthafafundi.