störf þingsins.
Virðulegur forseti. Ég vil gera að umtalsefni það sem kalla mætti skyndiákvörðun hæstv. forsætisráðherra þegar hann á lokaspretti sínum sem dómsmálaráðherra ákveður að lögregluembættið á Höfn verði ekki í Suðurkjördæmi eins og undirbúið hafði verið, heldur verði stjórnsýslan í Norðausturkjördæmi. Þessi ákvörðun hæstv. forsætisráðherra kom öllum á óvart; landshlutasamtökunum, Sambandi sveitarfélaga á Suðurlandi, sveitarstjórnarmönnum á Höfn og hv. þm. Unni Brá Konráðsdóttur sem er formaður allsherjar- og menntamálanefndar.
Á ársfundi Sambands sveitarfélaga á Suðurlandi sem haldinn var í haust fengu sveitarstjórnarmenn á Suðurlandi og þingmenn kjördæmisins mjög greinargóðar upplýsingar um það hvernig undirbúningi hefði verið háttað að nýju skipulagi þannig að lögregluembættið mundi heyra undir lögreglustjóraembættið á Suðurlandi. Sveitarstjórnarmenn lýstu mikilli ánægju með að stjórnsýslan væri þá öll komin í eitt kjördæmi, Suðurkjördæmi, þar sem Höfn í Hornafirði tilheyrir Suðurkjördæmi, það er lögregluembættið, heilsugæslan, menningarsamningarnir og fræðslunetið. Núna er búið að riðla þeim undirbúningi öllum saman.
Ég vil spyrja hv. þm. Unni Brá Konráðsdóttur hvað henni finnist um þessi vinnubrögð, hvort hún geti upplýst okkur um aðkomu nefndarinnar að undirbúningi að þessu nýja fyrirkomulagi og skipulagi lögregluembættanna og hvort samráð hafi verið haft við þingmenn í hv. allsherjar- og menntamálanefnd um þetta mál.