störf þingsins.
Hæstv. forseti. Nú um áramótin munu eldneytislög, nánar tiltekið lög nr. 40/2013, um endurnýjanlegt eldsneyti í samgöngum á landi, taka breytingum þannig að það hlutfall af vistvænu eldsneyti, svokallaðri lífolíu, sem þarf að blanda saman við venjulega dísilolíu hækkar úr 3,5% í 5%. Lögin eru innleiðing tilskipunar Evrópusambandsins þar sem markmiðið er að árið 2020 verði 10% af eldneytissölunni af endurnýjanlegum uppruna.
Virðulegi forseti. Ég er á svipuðum slóðum og hv. þm. Frosti Sigurjónsson var hér í fyrstu ræðu þar sem hann ræddi að gildistökuákvæði viðmiðunar hafði verið frestað fram í október 2014. Það hefur verið í fréttum að þessi fyrirhugaða breyting hefur leitt fram að innlend framleiðsla annar ekki nema 5% af íblönduninni. Skattgreiðendur tapa, erlendir birgjar hagnast, en áætlað er að skattgreiðendur tapi 6–8 milljörðum á þessu og það sé óþarfi þar sem Ísland sé langt yfir markmiðum Evrópusambandsins um notkun endurnýjanlegra orkugjafa og lögin því ekki nauðsynleg. Nú þarf að flytja inn enn meira og bæta þarf við etanóli þannig að við höldum áfram að eyða gjaldeyri í að flytja inn eitthvað sem mögulega er óþarfi.
Það var mat hv. atvinnuveganefndar á sínum tíma að innlend framleiðsla mundi bregðast við þeirri áskorun sem í breytingunni fælist og að vöxtur í innlendri framleiðslu mundi fylgja. Sú hefur ekki verið raunin. Virðulegi forseti. Þrátt fyrir mat hv. atvinnuveganefndar á sínum tíma tel ég mikilvægt í ljósi frétta af málinu og reynslunnar á þessu fyrsta ári og umsagna orkusala í fréttamiðlum að nefndin taki upp málið og fresti gildistökuviðmiðinu (Forseti hringir.) til ársins 2020.