störf þingsins.
Virðulegur forseti. Ég vil í upphafi máls míns taka undir þær áhyggjur sem hv. þm. Þorsteinn Sæmundsson lýsti af söluferli fyrirtækja í eigu Landsbanka Íslands. Það er grundvallaratriði þegar verið er að selja fyrirtæki sem við landsmenn eigum að allir viti af því að það sé verið að selja þau og allir geti boðið í þau. Það er sérstaklega mikilvægt til þess að eyða allri óþarfa tortryggni. Þær kennitölur sem Kjarninn birti í gær um verðlagningu fyrirtækja, kennitölur í rekstri og samanburð á þessu fyrirtæki og öðrum fyrirtækjum erlendis eykur enn áhyggjur manna.
Virðulegur forseti. Ég kvaddi mér hljóðs vegna máls málanna. Á Íslandi er læknaverkfall í fyrsta sinn í sögunni. Hingað upp kemur varaformaður fjárlaganefndar og vill ekki að stjórnmálamenn ræði kjaramál í þessum sal. Hvað eiga menn, virðulegur forseti, að ræða á Alþingi Íslendinga ef ekki það efni sem heitast brennur á þjóðinni og mestum áhyggjum veldur? Auðvitað hljótum við að gera það og þá ekki bara kjaramálin heldur líka starfsaðstæður fólksins í heilbrigðiskerfinu, ekki síst á Landspítalanum. Það er satt að segja löngu kominn tími til að ríkisstjórnin reki af sér slyðruorðið og komi með einhverjar áætlanir um uppbyggingu í heilbrigðiskerfinu. Þó að við getum kannski ekki keppt við Norðmenn í launum þá getum við að minnsta kosti sýnt til þess metnað á löggjafarþinginu, þegar efnahagurinn er að vaxa og ríkisfjármálin komin í plús, að við ætlum að hafa hér góðar aðstæður til að sinna sjúkum og slösuðum. Ég skora á ríkisstjórnina að vinda bráðan bug að því að koma hingað inn (Forseti hringir.) með áætlun sem ég veit að hefur stuðning í þingflokkum allra (Forseti hringir.) flokka á Alþingi, um uppbyggingu nýs Landspítala (Forseti hringir.) og betri starfsaðstæður þar.