fjárlög 2015.
Virðulegi forseti. Hv. þingmaður dregur skynsamlega í land, en þetta mál er ekki búið. Ég er hér með gögn sem ég mun dreifa sem tengjast nákvæmlega þessu máli og þeirri orðræðu sem verið hefur undanfarna daga.
Hv. þingmaður nefnir að skuldin tengist ekki rekstri. Auðvitað tengjast skuldir rekstri fyrirtækis. Ef hv. þingmaður telur að það sé óeðlilegt að framlög séu lægri en sem nemur útvarpsgjaldi, þá gerðist það í tíð síðustu ríkisstjórnar. Í tíð sjálfstæðismanna hefur verið greitt meira inn. Gert er ráð fyrir því, samkvæmt þessu frumvarpi, að það sé sama upphæð og er af tekjum af útvarpsgjaldi. Þar er lögð fram tillaga um gríðarlega hækkun til Ríkisútvarpsins.
Ég skil ekki af hverju hv. þingmaður talar með þessum hætti. En ég hvet hann til að tala skýrt þegar kemur að þeim fullyrðingum sem koma fram í fréttum Ríkisútvarpsins, hvet hann til þess að tala skýrt. Það mál er ekki til lykta leitt, en verður til lykta leitt.