144. löggjafarþing — 43. fundur,  8. des. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[16:35]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P):

Herra forseti. Læknar eru nú í fyrsta skipti í sögu landsins í verkfalli. Við erum að ræða hérna fjárlög, við erum að ræða hvernig eigi forgangsraða skattfé almennings. Vilji landsmanna er afgerandi og skýr. Landsmenn vilja forgangsraða í heilbrigðiskerfinu. 90% landsmanna setja heilbrigðiskerfið eða í 1. eða 2. sæti, þar á eftir kemur menntakerfið með 44%. Það er afgerandi vilji landsmanna að forgangsraða í heilbrigðiskerfið. Bilið frá 2. sæti upp í 1. sæti er tvöföldun. Viljinn er afgerandi, ekki bara landsmanna í heildina litið heldur er það er óháð efnahag, óháð menntun, í öllum kjördæmum, í öllum flokkum, sama hvort viðkomandi er kona eða karl. Þetta er yfir línuna. Landsmenn eru afgerandi á þeirri línu að það eigi að forgangsraða í heilbrigðiskerfið.

Þegar ég fór í gegnum stefnuskrár og kosningaloforð flokkanna og stjórnarflokkanna sér í lagi fyrir síðustu kosningar þá var ein setning um forgangsröðun skattfjár samþykkt sem stjórnmálaályktun 41. landsfundar Sjálfstæðisflokksins. Það er gaman að sjá hvað sjálfstæðismenn segja um forgangsröðun skattfjár. Eru þeir sammála afgerandi afstöðu landsmanna í skoðanakönnuninni frá því í nóvember sem Capacent Gallup gerði fyrir þingflokk Pírata? Hvað sögðu sjálfstæðismenn fyrir kosningar og hvað samþykktu þeir á landsfundinum fyrir kosningar varðandi forgangsröðun skattfjár? Þar kemur mjög skýrt fram, með leyfi forseta:

„… leggja skattfé fyrst í þau verkefni sem eru brýn og áríðandi.“

Í stjórnmálaályktun þeirra var: „Örugg heilbrigðisþjónusta“. Þetta er sú forgangsröðun sem landsfundur Sjálfstæðisflokksins vildi, þ.e. leggja í brýn og áríðandi verkefni, forgangsraða skattfé þangað. Fyrst var nefnt öruggt heilbrigðiskerfi.

Heilbrigðiskerfi á Íslandi í dag er mjög gott. Það er vegna þess að við byggjum á mjög gömlum og góðum grunni, en það er byrjað að hola kerfið að innan. Það er ekki langt í það að við förum að missa grunninn. Grunnurinn er meðal annars sérfræðingarnir. Þá er spurningin: Í hvað eigum við að forgangsraða þegar kemur að heilbrigðiskerfinu, sem landsmenn eru á einu máli um að eigi að forgangsraða í og landsfundur Sjálfstæðisflokksins samhliða, samanber öruggt heilbrigðiskerfi? Stjórnarflokkarnir nefndu mannauðinn sem mikilvægasta atriði í heilbrigðiskerfinu fyrir kosningar. Þá ætti nú að forgangsraða þangað, a.m.k. ef það er brýnt og áríðandi. Það er ekki það eina sem skiptir máli, að sjálfsögðu ekki, en það á að forgangsraða í mannauðinn.

Hvað þarf til að halda í mannauðinn? Ég er búinn að spyrja lækna að þessu síðustu daga, unga lækna af minni kynslóð, yngri en það og eldri kynslóðirnar sem fóru út í nám áður en internetið var og hét og menn gátu talað við alla á Skype og það varð í rauninni eins og að fara til Akureyrar að fara til Skandinavíu. Allir eru sammála um að það sem þurfi til að halda í lækna á Íslandi, þ.e. að grundvöllurinn fyrir gæði þjónustunnar og minni biðlistum, sé þríþætt. Það er aðbúnaður sem þýðir tækin og húsnæðið og allur aðbúnaður til að geta sinnt sjúklingum. Það er vinnuálagið. Það hefur alltaf verið mikið vinnuálag á læknum en þegar það fer upp fyrir ákveðin mörk, t.d. ef hjón sem eru læknar hittast ekki, þurfa að skiptast á að sinna börnunum og hittast ekki, þá fá menn nóg. Svo eru það launin. Þau hafa alltaf verið lægri á Íslandi en í Skandinavíu, a.m.k. svo lengi sem elstu menn muna. Þegar þetta hefur verið skoðað þá hafa launin á Íslandi, aðbúnaðurinn og vinnuálagið allt verið neikvæðir þættir á Íslandi miðað við það sem hefur verið í Skandinavíu, en menn hafa samt komið heim úr námi.

Ástæðan fyrir að við höfum haft svona rosalega gott heilbrigðiskerfi er vegna þess að sérfræðingarnir okkar hafa farið í bestu háskóla heimsins, menntað sig og komið aftur heim með sérfræðiþekkingu. Þetta gerist ekki í dag nema í litlum mæli. Læknar segja mér að þeir sérfræðingar sem koma heim staldri oft stutt við, starfi hérna í tvö til þrjú ár og fari svo aftur út. Við erum að missa mannauðinn. Starfandi landlæknir sagði mér í síðustu viku að það væri jafnvel orðið svo slæmt á sumum deildum að læknarnir þar töluðu um að þeir væru búnir að missa heila kynslóð. Læknar eru í verkfalli í fyrsta skipti í sögu landsins.

Þeir sem þekkja til og vita hvernig þetta var fyrir nokkrum áratugum muna að verkföll voru tíð en læknar fóru aldrei í verkfall. Það kom mér mjög mikið á óvart að læknarnir færu aldrei í verkfall. En nú eru þeir farnir í verkfall. Fram kom í kastljóssviðtali við formann Læknafélags Íslands að ef læknar samþykktu verkfallsaðgerðir og næðu ekki að semja í kjaradeilu sinni yrði alltaf einhver hópur í verkfalli frá byrjun janúar til páska. „Þorbjörn Jónsson, formaður Læknafélags Íslands, segir það skapa vanda sem erfitt verði að vinna úr.“ Þetta var frétt sem birtist 2. þessa mánaðar á RÚV. Nú er þriðja verkfallslotan hafin og við sjáum ekki til lands við að leysa þá deilu.

Þá er spurningin: Eru til peningar? Hingað til höfum við getað haft nógu samkeppnishæft umhverfi fyrir lækna á Íslandi til að þeir hafi komið aftur heim og sérfræðingarnir hafi komið aftur heim. Við afsöluðum okkur auðlindagjaldinu, þ.e. helmingnum af því sem heilbrigðisstofnanir á landinu kalla eftir umfram það sem er verið að veita núna í fjárlögum. Við þurfum ekki að fara í langa umræðu um sérstöku veiðigjöldin en svo að það sé alveg á hreinu þá voru þau af hagnaði. Það var hægt að taka allan kostnað burtu og það sem eftir stóð var skattlagt sem auðlind, réttilega. Þetta er hægt að gera. Þessu afsalaði ríkisstjórnin sér.

Sitjandi ríkisstjórn leggur mikla áherslu á að einfalda virðisaukaskattskerfi með því að hækka neðra þrepið úr 7% upp í 12%. Síðan var sagt: Ókei, við skulum ekki hækka það upp í 12%, við skulum hækka það upp í 11% með breytingartillögu og lækka efra þrepið. Ástæðan fyrir þessu er sú að minnka á bilið milli þrepanna því að það gerir skattkerfið skilvirkara. Á sama tíma fækka þeir þeim sem eru í núllþrepinu, sem er í rauninni þriðja þrepið, og setja þá upp í þrepið sem verður þá líklega 11%. Þeir eru að fækka undanþágum vegna þess að það gerir skattkerfið skilvirkara. Samt sitja enn eftir ósóttar tekjur, þ.e. undanþágur. Undanþágurnar á virðisaukaskattinum eru vanalega heilbrigðismál, menntamál og slíkt. Flestir vilja hafa þetta þannig og þannig verður það enn. Ýmis ferðaþjónusta fær ekki lengur undanþágu en það sem fær enn undanþágu er laxveiði. Rökin eru: Þetta er slæmt, við getum bara ekkert gert í þessu út af því að þetta er leiga á fasteign og við getum alls ekkert gert við því. — En hótelherbergi er leiga á fasteign. Það er litið á það sem leigu á herbergi sem dvalið er í í stuttan tíma og þar af leiðandi er sett í lög að ef leigja á fasteign í styttri tíma en mánuð þá skuli borgaður virðisaukaskattur. Að sjálfsögðu er hægt að gera það sama með laxveiði. Við erum löggjafinn. Stjórnarflokkarnir geta að sjálfsögðu ákveðið að laxveiði í þessum skilningi sé ekki leiga á fasteign og tekið virðisaukaskatt. Þetta er ekkert mál. Þannig væri hægt að ná inn líklega 1,7 milljörðum og rúmlega það, kannski 2 milljörðum sem mundu þá skila sér upp í þennan 3,1 milljarð sem vantar upp á. Landsmenn vilja forgangsraða skattfé sínu í heilbrigðiskerfið og stjórnvöld vilja skilvirkara skattkerfi. Þetta gerir bæði skilvirkara skattkerfi og skapar meira fé í heilbrigðiskerfið. Það er ekkert mál fyrir Alþingi að gera þetta ef það er vilji fyrir því, ekkert mál. Að sjálfsögðu eigum við að gera þetta. Það gerir skattkerfið skilvirkara. Þeir sem hafa mikið á milli handanna og fara í laxveiði eiga ekki eftir að víla það fyrir sér þótt veiðileyfin hækki, enda halda þeir áfram að fara í laxveiði. Það eru oft fyrirtæki sem bjóða. Þetta minnkar ekki eftirspurn að stóru leyti. Þetta er góður skattur. Virðisaukaskatturinn er skilvirkur skattur. Þetta er undanþága sem á að sjálfsögðu ekki að vera til staðar. Þarna eru til peningar sem hægt er að sækja á algerlega sanngjörnum forsendum, gera skattkerfið skilvirkara og skila þessu fé inn í heilbrigðiskerfið.

Hvað mundi það þýða? Það mundi meðal annars þýða að íslenska heilbrigðiskerfið yrði örlítið samkeppnishæfara við önnur ríki. Þetta er akkúrat ástæðan fyrir því að við erum að missa það sem segir í stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins: Heilbrigðisstarfsfólkið okkar er hin raunverulegu verðmæti heilbrigðiskerfisins. Og kosningaloforð Framsóknarflokksins fyrir kosningar sagði að verðmæti heilbrigðisþjónustunnar fælust fyrst og fremst í mannauðinum og því bæri að bæta starfsumhverfi og kjör heilbrigðisstétta og draga þannig úr brotthvarfi innan stéttarinnar. Stjórnarsáttmálinn er alveg skýr: Íslenskt heilbrigðiskerfi verður að vera samkeppnishæft við nágrannalöndin. Það er hægt á algerlega sanngjörnum forsendum að hætta að veiti laxveiði undanþágu af virðisaukaskatti, gera skattkerfið skilvirkara, færa þessa peninga inn í heilbrigðiskerfið til að minni líkur séu á að við missum mannauðinn, gera íslenskt heilbrigðiskerfi samkeppnisfærara við nágrannaríkin, bæta starfsumhverfi og kjör heilbrigðisstétta og draga þannig úr brotthvarfi innan stéttarinnar. Þetta er svo borðleggjandi að ég er hissa á að maður þurfi í rauninni að segja það. Þarna er klárlega getan, það er bara spurning um vilja. Vilji í stjórnmálum snýst að miklu leyti um vinsældir og menn verða að geta í svona málum sýnt fram á að þeir séu sanngjarnir. Þetta er ekki sanngjarnt á meðan við erum að afsala okkur alls konar tekjum og ekki er verið að forgangsraða í heilbrigðiskerfið að því leyti sem þarf samkvæmt forsvarsmönnum heilbrigðiskerfisins, samkvæmt öllum læknum sem ég hef rætt við og öllum læknum sem hafa tjáð sig í fjölmiðlum. Ég hef ekki heyrt neinn lækni stíga fram og segja: Nei, þetta er ekki svona. — Læknar eru komnir í verkfall í fyrsta skipti í sögunni.

Ég veit eiginlega ekki hvort ég trúi því að ekki verði bætt í. Kannski verður það ekki gert. Ég er búinn að vera allt of upptekinn við það að benda á hvað þetta er augljóst, benda á að þetta er klár og skýr vilji kjósenda allra flokka í öllum kjördæmum óháð efnahag, óháð kyni, óháð aldri — allra. Ég hef kannski ekki viljað trúa því að ekki eigi að forgangsraða að því marki sem forstöðumenn heilbrigðiskerfisins segja og skapa kringumstæður svo að við missum ekki mannauðinn. Það var mikilvægasta atriðið þegar kom að heilbrigðiskerfinu samkvæmt báðum stjórnarflokkunum fyrir kosningar.

Mig langar að lokum að lesa ályktun stjórnar læknaráðs Landspítala nýlega, með leyfi forseta:

„Stjórn læknaráðs Landspítala lýsir yfir verulegum áhyggjum af stöðu lækna og áhrifa verkfalls þeirra á starfsemi spítalans. Samkomulag um kjarasamninga hefur dregist óhóflega á langinn, og virðist sem engin lausn sé í sjónmáli. Verkfall lækna hefur gríðarleg áhrif á starfsemi spítalans. Aðgerðum, rannsóknum og göngudeildarviðtölum er frestað og öll valstarfsemi liggur niðri á meðan verkfall er. Þjónustan við sjúklinga er því í lágmarki sem seinkar bata og getur hæglega ógnað öryggi þeirra. Enn hertari aðgerðir eru í sjónmáli eftir áramót ef ekki semst fyrir þann tíma.

Samkvæmt könnunum hefur meiri hluti almennings skilning á stöðu lækna og styður að komið sé til móts við kröfur þeirra. Heilbrigðisráðherra hefur lýst yfir skilningi og stuðningi við lækna.

Þreyta og uppgjöf er greinileg í hópi lækna og hafa nokkrir þeirra þegar tekið það stóra og erfiða skref að segja upp starfi sínu við spítalann. Við óttumst að fleiri læknar velji sömu leið ef ekki næst að semja um kjarasamninga sem fyrst. Það myndi hafa hörmulegar afleiðingar fyrir starfsemi spítalans og erfitt eða jafnvel ógerlegt að bæta upp þann missi í nánustu framtíð.

Stjórn læknaráðs hvetur samningsaðila til að komast að samkomulagi án tafar svo hægt sé að tryggja áframhaldandi mönnun við spítalann og koma í veg fyrir frekari flótta lækna frá spítalanum.

Framtíð sérhæfðrar heilbrigðisþjónustu og Landspítalans er í húfi!“

Hvað höfum við? Það sem við höfum í höndunum er að við erum að forgangsraða með fjárlögum skattfé almennings. Landsfundur Sjálfstæðisflokksins og almenningur alls staðar er sammála um að forgangsraða eigi í heilbrigðismál. Það sértæka sem landsfundur Sjálfstæðisflokksins ályktaði var að það ætti að forgangsraða skattfé í brýn og áríðandi verkefni og nefndi þar fyrst öruggt heilbrigðiskerfi.

Við stöndum frammi fyrir því að læknar eru í verkfalli í fyrsta skipti í sögunni. Tíu læknar á bráðamóttökunni, sem eru í verkfalli, segjast ætla að segja upp. Verkfallið dýpkar núna. Sitjandi landlæknir segir að ef ekki náist samningar og önnur verkfallshrina verði eftir áramót getum við verið komin í neikvæðan spíral þar sem læknar fari og það mikla vinnuálag sem er þegar til staðar aukist á þeim sem eftir sitja sem séu þá líklegri til að fara og koll af kolli þannig að við missum sérfræðinga. Við fáum ekki nýja. Við vorum ekki einu sinni byrjuð að byggja upp. Þetta þýðir bara það að við missum marga sérfræðinga sem hefur kostað okkur gríðarlega mikið að mennta og er grundvöllurinn fyrir góðu heilbrigðiskerfi á Íslandi.

Hvað sögðu Framsóknarflokkkrinn og Sjálfstæðisflokkurinn fyrir kosningar? Mannauðurinn er mikilvægastur þegar kemur að heilbrigðiskerfinu. Núna er ekki í sjónmáli að samningar náist við lækna, sem almenningur vill forgangsraða í. Þetta er brýnt og áríðandi samkvæmt landsfundarályktun Sjálfstæðisflokksins. Þetta er brýnt og áríðandi varðandi forgangsröðun skattfjár. Ég mundi vilja heyra frá fleiri þingmönnum. Þeir hafa verið spurðir undanfarna daga og frá því fyrir helgi: Með þetta allt fyrir framan okkur, alvarleika ástandsins, gefin kosningaloforð, skýran vilja kjósenda og landsfundarályktun Sjálfstæðisflokksins, annars stjórnarflokksins, getum við á Alþingi leyft okkur að afgreiða fjárlög til heilbrigðiskerfisins áður en læknadeilan leysist?