hagræn áhrif kvikmyndagerðar á Íslandi.
Virðulegi forseti. Hér er beiðni nokkurra hv. þingmanna til iðnaðar- og viðskiptaráðherra um hagræn áhrif kvikmyndagerðar á Íslandi með sérstakri áherslu á svæði þar sem viðkomandi kvikmyndir eru teknar. Líka er litið til þeirra tækifæri sem skapast í ferðaþjónustu þegar teknar eru upp kvikmyndir hér á landi. Fyrirmyndin er til dæmis frá Svíþjóð þar sem Wallander-myndirnar, eða framhaldsþættirnir, hafa auglýst mjög Skán og Ystad, heimabæ þessa fræga lögreglumanns, en þar hefur orðið 30–40% aukning á ferðamönnum eftir að þessir þættir voru gerðir og urðu jafn þekktir og raun ber vitni. Það er mikilvægt að við nýtum þau tækifæri sem landið hefur upp á að bjóða. Hér er um tækifæri að ræða.
Að lokum má nefna að í nýlegri skýrslu Ferðamálastofu nefndu 13,2% aðspurðra ferðamanna að kvikmyndir með íslensku landslagi eða íslenskar kvikmyndir væru ástæða hugmynda þeirra um að koma til okkar góða lands.