144. löggjafarþing — 44. fundur,  9. des. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[17:13]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta fjárln. (Brynhildur Pétursdóttir) (Bf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég held að í sjálfu sér sé ekkert í gangi í hv. fjárlaganefnd sem ekki má koma fyrir augu almennings. Ég held jafnvel að mæting á nefndarfundi gæti batnað ef fundirnir væru opnir, bara til að nefna dæmi, og kannski mundi fólk mæta stundvíslega. Ég held að það gæti jafnvel haft áhrif á hvernig fundarmenn tala við gesti sína, hvernig tónninn er og þar fram eftir götunum. Í mörgum tilfellum held ég að það gæti bara bætt hlutina og væri alveg tilraunarinnar virði þótt ekki væri nema einn nefndarfundur í viku opinn eða tekinn upp eða hvernig sem það er, svona til að byrja með. Ég held að við þurfum að ræða það í þingskapanefnd þar sem Píratar eiga fulltrúa og endilega halda áfram þeirri vinnu sem þar er.

Varðandi fjárlögin sjálf held ég að mikilvægt sé að bókin sem við fáum í hendur sé aðgengilegri en hún er nú. Ég mundi vilja að einhver sem ekki hefur rosalegt vit á fjárlögum læsi hana yfir með þeim augum að hver meðalgreind manneskja sem les fjárlögin eigi (Forseti hringir.) að geta skilið þau. Við eigum ekki að þurfa að biðja um útskýringar á fundum á einhverjum texta sem við skiljum (Forseti hringir.) ekki í fjárlagafrumvarpinu. Það á ekki að vera þannig.