fjárlög 2015.
Virðulegi forseti. Nei, ég veit ekki alveg hvort þeir eru alveg meðvitaðir um þetta. Mér þykir það einmitt skrýtið eins og hv. þingmanni, en ég er ekki alveg viss um það eftir viðtöl mín við stjórnarliða. Í máli þeirra finnst mér þeir ekki taka þetta alvarlega. Hvers vegna? Ég skil það ekki alveg út frá styrkleikum heilbrigðiskerfis okkar. Það kemur alveg skýrt fram hvað þeir telja í kosningabaráttunni, að mannauðurinn er helstu verðmæti heilbrigðiskerfisins. Það er alveg rétt. Það er mannauðurinn, það eru sérfræðingarnir sem fara út um allan heim til að mennta sig og koma aftur heim til Íslands. Hérna einu sinni skiluðu 80% sér heim. Þeir skila sér núna í miklu minni mæli heim. Þeir sem koma staldra oft stutt við og fara út aftur. Við stöndum núna frammi fyrir læknaverkfalli sem mun fækka þeim sérfræðingum enn frekar, þeir munu segja upp störfum og fara úr landi. Uppsafnaður kostnaður, eins og hv. þingmaður nefndi, veldur skaða. Svo eru biðlistarnir. En síðan eru það sérfræðingarnir sem við missum. Það er miklu auðveldara að finna 400 milljónir en að fá þá sérfræðinga aftur heim ef þeir eru búnir að segja upp og hafa ráðið sig einhvers staðar annars staðar. Það er mikill skaði og kostnaður.
Ég ræddi við sitjandi landlækni og fyrrverandi landlækni. Það sem kom fram hjá þeim var að ef ekki nást samningar og ef önnur verkfallslota verður eftir áramót telja þeir að við séum komnir í þann neikvæða spíral að læknar og sérfræðingar segja upp. Vinnuálag þeirra leggst á þá sem eftir sitja, sem eru nú þegar undir ofboðslegu miklu vinnuálagi, og þeir verða þá líklegri til að fara og síðan koll af kolli. Þá verðum við í mjög alvarlegri stöðu. Þeir nefndu líka að á sumum deildum tali læknarnir um að heila kynslóð af læknum vanti (Forseti hringir.) á þær deildir.