fjárlög 2015.
Virðulegur forseti. Þessi þróun endurspeglast sýnist mér líka í breytingunum, sem eru gerðar á því sem oft hefur verið komið inn á í umræðunni og verður ekki of oft nefnt, að útiloka þá sem eru 25 ára og eldri frá bóknámi eða vísa þeim annað. Þá hefur verið bent á að fólk geti farið í skóla á Bifröst eða í Keili á Suðurnesjum. Mér skilst að önnin kosti 225 þús kr. Það eru náttúrlega heilmiklir peningar og spurning hvernig það kemur út fyrir fólk sem hefur kannski hætt í námi af einhverjum ástæðum og ætlar svo að drífa sig aftur í nám, en þá kemur ríkisvaldið og skellir því sem ég vil kalla bara blauta tusku í andlitið á þeim. Svo hefur þetta líka þau áhrif að skólar úti á landi missa nemendahóp sem verður einfaldlega til þess að ekki verður hægt að bjóða upp á sama námsframboð og áður.
Mig langar að spyrja þingmanninn, af því að hún er vel að sér í þessum málum á landsbyggðinni, hvort þetta sé ekki rétt skilið hjá mér.