fjárlög 2015.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu. Mig langaði aðeins að spyrja út í Ríkisútvarpið þar sem mikið hefur verið fjallað um það. Ég upplifi það eins og stjórnvöld ætlist til þess að stjórn RÚV ákveði hvar á að skera niður. Við erum að tala um það mikinn niðurskurð að það verða miklar breytingar á starfsemi RÚV. Ég upplifi það sem pólitíska ákvörðun hvort eigi að hætta með Rás 1, leggja niður fréttastofuna eða loka því litla sem er þó á landsbyggðinni eða hvað það er nákvæmlega sem á að gera, en að ekki sé hægt að setja það í hendurnar á stjórninni. Mig langaði til að velta því upp við hv. þingmann hvað henni finnist um þá stöðu sem RÚV stendur frammi fyrir. Ef fjárlagafrumvarpið verður samþykkt eins og það er hér verður mikill niðurskurður. Eru það þá stjórnin og forsvarsmenn RÚV sem taka ákvörðun um það hvort við hlustum áfram á Rás 1 eða hvort við slökkvum á sjónvarpinu klukkan tíu á kvöldin eða hvað verður gert? Er það ekki á ábyrgð stjórnvalda og jafnvel hæstv. menntamálaráðherra að leggja fram hvaða stefnubreyting eigi að verða? Ég held að ekki verði farið í meiri niðurskurð þar sem menn fara í einstakar hagræðingaraðgerðir. Það verður einhver mikil breyting. Mig langaði aðeins að heyra hvað hv. þingmanni finnst um þá stöðu sem upp er komin varðandi Ríkisútvarpið.