144. löggjafarþing — 44. fundur,  9. des. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[21:30]
Horfa

Valgerður Bjarnadóttir (Sf) (um fundarstjórn):

Forseti. Í tilefni af orðum hv. formanns fjárlaganefndar vil ég bara benda á að 3. umr. um fjárlagafrumvarpið átti að hefjast 3. desember og varla tölum við aftur á bak þannig að það er ekki hægt að kenna okkur um það að 2. umr. sé ekki lokið. Það er vegna þess að 2. umr. hófst allt of seint og það var á ábyrgð fjárlaganefndar og hennar eingöngu en ekki annarra þingmanna hér í salnum.