144. löggjafarþing — 45. fundur, 10. des. 2014.
fjárlög 2015.
1. mál
Herra forseti. Við greiðum hér atkvæði um aukið framlag fyrir RÚV. Mér er ekki ljúft að greiða atkvæði með því, ég á reyndar eftir að greiða atkvæði og geri það um leið og ég kem í sætið. Ég geri það í trausti þess að RÚV geri endurbætur á fjármálum sínum og lagi reksturinn eins og lofað hefur verið, enda skilst mér að þessi fjárveiting sé skilyrt því að það geri slíka endurskoðun. Ég segi já.