144. löggjafarþing — 45. fundur,  10. des. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[16:42]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg):

Herra forseti. Í þessari 40,3 millj. kr. tölu eru 30 milljónir sem Háskólinn á Akureyri er þá loksins að fá hér inn aftur eftir barning. Hann hefur haft þessa fjárhæð undanfarin tvö ár og hún var látin ganga til háskólans til þess að hann gæti efnt samninga við kennara um rannsóknarmissiri þeirra sem höfðu verið lögð af í tvö ár í sparnaðarskyni meðan háskólinn lifði í gegnum mestu þrengingarnar og vann upp gamlan skuldahala sem hann hefur gert af miklum dugnaði. Það er alveg óskiljanlegt að meiri hluti fjárlaganefndar ætli að fara að stjórna innri málum háskólans með því að eyrnamerkja 20 af þessum 30 milljónum í allt annað verkefni, ágætt verkefni. Þessu verður að breyta með nýrri lögskýringu við 3. umr. þessa máls, ef hv. formaður fjárlaganefndar er ekki svo vænn að gera það munnlega hérna nú þegar.

Síðan er það í öðru lagi ósanngjarnt að Háskólinn á Akureyri sem er þriðji stærsti háskólinn í landinu svo miklu munar fái aðeins 10,3 milljónir af á sjöunda hundrað milljónum sem aukið er í (Forseti hringir.) í við háskólana. Það sjá allir menn þegar þeir horfa til stöðu og hlutverks(Forseti hringir.) háskólanna að þetta er ósanngjörn afgreiðsla á Háskólanum á Akureyri.