144. löggjafarþing — 45. fundur,  10. des. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[16:49]
Horfa

Elsa Lára Arnardóttir (F):

Hæstv. forseti. Ég fagna því mjög að aukafjármagn sé að fást til Landbúnaðarháskóla Íslands. Miklar ánægjuraddir hafa heyrst frá Hvanneyri og þakkir fyrir að efla það góða starf sem þar er unnið og að efla stofnunina. Auðvitað segi ég já við því því að þetta er til góða fyrir samfélagið allt þarna á Hvanneyri sem er að byggjast upp.