144. löggjafarþing — 45. fundur, 10. des. 2014.
fjárlög 2015.
1. mál
Virðulegi forseti. Það er eitt að vilja fylgja eftir stefnu um jafnvægi í uppbyggingu opinberra stofnana í landinu en þegar forsendur, aðferðafræði og öll vinnubrögð eru líkt og við höfum orðið vitni að í þessu máli, algjörlega óverjandi, þá er ekki nokkur leið að standa að samþykkt þessarar tillögu.