fjárlög 2015.
Virðulegi forseti. Það verður að segjast eins og er að ummæli margra hv. þingmanna koma mjög á óvart. Ég ætla ekki að rifja upp síðasta kjörtímabil, ég veit að hv. þm. Kristján Möller barðist alltaf fyrir auknum framkvæmdum og gæti kannski einhvern tímann í góðu tómi sagt söguna alla. Sem betur fer erum við að fara í framkvæmdir og höfum lagt áherslu á að forgangsraða í þá veru. Ég vonast til þess að við sjáum framkvæmdir fara af stað við Arnarnesveg. Við fórum vel yfir það í hv. fjárlaganefnd. Fjárlaganefnd getur ekki ákveðið í hvaða framkvæmdir er farið en forgangsraðað hefur verið í þágu þessa málaflokks, (Gripið fram í.) ólíkt því sem hv. þm. Kristján Möller vildi á síðasta kjörtímabili. Menn í stjórnarmeirihlutanum hefðu betur hlustað á hv. þm. Kristján Möller þá, þá hefðum við kannski ekki lent í því sem Hagstofan nefndi, þar var sagt að þetta hefði verið lægsta framkvæmdastig frá dögum seinni heimsstyrjaldar.