144. löggjafarþing — 45. fundur,  10. des. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[19:17]
Horfa

Valgerður Gunnarsdóttir (S):

Hæstv. forseti. Það er ánægjulegt að við fáum hér með þessum væntanlegu tekjum frá Isavia fjármagn til flugvalla landsins sem svo sannarlega er ekki vanþörf á. Ég vil hins vegar gera athugasemd við það að ekki er minnst á Húsavíkurflugvöll í þeirri upptalningu sem fylgir með fjárlagafrumvarpinu til 2. umr. og ég vænti þess að við getum lagfært það á milli umræðna.