144. löggjafarþing — 45. fundur,  10. des. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[19:22]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegi forseti. Ég greiði með glöðu geði atkvæði mitt með þessari góðu tillögu. Hér er ríkisstjórnin að hefja vegferð sem er löngu tímabær, að klára ljósleiðaravæðingu landsins. Það er verkefni sem við eigum að fara í á næstu árum og ljúka. Þetta er stærsta byggðaverkefnið sem mun skipta miklu meira máli en margt það sem við höfum rætt hér í sambandi við byggðamál í dag og eru þó mörg mjög mikilvæg. Ég er ákaflega stoltur af því að við skulum geta gert þetta nú þegar og komið þessu á laggirnar. Ég vænti mikils af þeirri nefnd sem hefur starfað á vegum innanríkisráðuneytisins og tveir hv. þingmenn hafa setið í og mun hún skila skýrslu á næstu dögum, ef mér hefur ekki skjöplast, þar sem vegferðinni verður lýst og við verðum í allt annarri stöðu hvað þetta varðar með samskipti fólks í millum á Íslandi, möguleika til dreifnáms, atvinnuuppbyggingar og hvaðeina, hringinn í kringum landið.